21.6.2010 19:08

Nýsköpun í matvælum á Katla Geopark svæðinu

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands og Matís eru þátttakendur í öndvegisverkefni sem snýr að framleiðslu og sölu á mat úr héraði.

Markmiðið er að auka sjálfbærni ferðaþjónustu á svæðinu.  Unnið verður sérstaklega með Geopark svæðið (Skaftárhrepp, Mýrdalshrepp og Rangárþing eystra) og er verið að leita að áhugasömum framleiðendum/ferðaþjónustuaðilum til að taka þátt í verkefninu. Stefnt er á að vinna í það minnsta 2-3 sprettverkefni sem fela í sér framleiðslu á sérstökum Geopark afurðum (með vöruþróun og markaðsplani) ásamt því að setja upp áhugaverða söluleið.

Guðmundur Heiðar Gunnarsson hjá Matís á Hornafirði er verkefnisstjóri í þessu verkefni og ætlar hann að vera með kynningu á því á Ströndinni í Vík kl.15 á fimmtudaginn næstkomandi 24. júní.

Þannig að ef þú ert að framleiða flotta vöru, með góða hugmynd að slíkri eða einfaldlega með áhuga á framleiðslu á mat úr héraði þá viljum við hvetja þig til að mæta á þessa kynningu!

Hlökkum til að sjá sem flesta




Til baka