
|
|
|||
| Úr Þórsmörk. Mynd: Þorseinn Jónsson | |||
|
|
|||
Um árabil hefur Útivist haldið Jónsmessuhátíð á Fimmvörðuhálsi og í Básum. Eftir eldgosin á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli er margt áhugavert að sjá á þessu svæði, ný náttúrufyrirbæri hafa litið dagsins ljós og ummerki landmótunar á eldfjallasvæði skýrari en áður. Ganga yfir Fimmvörðuháls er þó metin nokkuð erfiðari en áður og sem stendur ekki hentug fyrir stóra næturgöngu eins og verið hefur á Jónsmessuhátíð Útivistar. Básar á Goðalandi standa þó fyrir sínu sem fyrr og gróður á svæðinu hefur staðið af sér áhrifamátt eldfjallanna.
Í ljósi þessa höfum við aðlagað Jónsmessuhátíðina í ár að þessum breyttu aðstæðum. Í stað göngu yfir Fimmvörðuháls verður ekið beint inn í Bása og farið þaðan í áhugaverða göngu þar sem ummerki eldgossins á Fimmvörðuhálsi verða skoðuð.
Ekið er frá BSÍ á áður auglýstum tímum og keyrt sem leið liggur í Bása. Gengið er inn með Goðalandi að mynni Hrunaárgils en þar er haldið upp á Foldir um svonefndar Hestagötur. Farið um Morinsheiði, yfir Heljarkamb og upp á Bröttufannarfell þar sem er einstaklega gott útsýni yfir gosstöðvarnar. Þaðan haldið niður að hrauninu og hinu nýja felli á Fimmvörðuhálsi. Eftir að svipast hefur verið um þar, er haldið til baka niður Bröttufönn og niður í Hvannárgil. Þar sést hraunfossinn niður í gilið vel og hrauntungan sem rann niður gilið. Gengið upp á Votupalla og þar upp á Réttarfell. Haldið vestur af Réttarfelli og komið niður við Álfakirkju, þaðan sem gengið er aftur í Bása.
Heildarvegalengd göngunnar er 15 km.
Eftir gönguna hvílast göngumenn fram á laugardag, en á laugardagskvöldið er hefðbundin Básastemning með glæsilegri grillveislu, varðeld og söng.
Þátttakendum er bent á að hafa farangur til göngunnar tilbúinn í bílunum en rútur fara með annan farangur inn að skálasvæðinu.
Nánari upplýsingar má nálgast hjá Útivist www.utivist.is