28.6.2010 15:32
Jazz undir fjöllunum
Skógasafn
Jazzhátíð verður í Skógum undir Eyjafjöllum laugardaginn 3. júlí 2010. Margir framúrskarandi listamenn koma að og munu gleðja gesti með góðum tónum. Dagskrá Jazzhátíðarinnar
3. júlí 2010
Byggðasafnið í Skógum Samgöngusafn / Skógakaffi
Kl. 13.00 Tríó Sigurðar Flosasonar
Kl. 14.00 Kvartett Andrésar Þórs
Kl. 15.00 Dúó Sigurðar & Kjartans
Kl. 16.00 Kvartett Kjartans Valdemarssonar
Félagsheimilið Fossbúð
Kl. 21.00 Ragnheiður Gröndal, Egill Ólafsson, Sigurður Flosason, Kjartan Valdemarsson og Matthías Hemstook.
Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson syngja lög Sigurðar Flosasonar við ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðarsonar um heim íslenskra eyðibýla; húsin, náttúruna, hlutina sem urðu eftir, fólkið sem fór og hina framliðnu sem e.t.v. eru enn á stjái.
Jazz undir fjöllunum er samstarfsverkefni Skógasafns, Rangárþings eystra, Tónlistarsjóðs og Menningarráðs Suðurlands.
Sjá nánari dagskrá hér.
Til baka