1.7.2010 16:08

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárvallasýslu

Ásahreppur, Rangárþing eystra og Rangárþing ytra.

 

 

Hreppsnefnd Ásahrepps auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73-1997 með síðari breytingum.

Aðalskipulagstillagan tekur til alls lands innan sveitarfélagamarka og er birt á uppdráttum og í greinargerð .  Skipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu og öðrum gögnum eru til sýnis frá 23. júní til og með 3. ágúst. n.k.

á eftirfarandi stöðum:

·         Skrifstofu Ásahrepps , Laugalandi ,851- Hellu. 

·         Skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs. Ormsvelli 1, Hvolsvelli. 

·         Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.

Öll ofangreind gögn má ennfremur nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins:

www.asahreppur.is

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við skipulagstillöguna. 

Athugasemdafrestur er til kl 16:00, þriðjudaginn 3. ágúst  2010.

 

Athugasemdum ef einhverjar eru, skal skila skriflega á skrifstofu byggingar- og skipulagsfulltrúa að Ormsvelli 1,  860 Hvolsvelli.
netföng hjá skipulags- og byggingarfulltrúa:

runar@hvolsvollur.is og byggingarfulltrui@rang.is

 

---------------------------------------------------------------------------------------------------

Samkvæmt 1. mgr. 25.gr. skipulags- og byggingarlaga nr 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögur.

 

Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Sámsstaða í Fljótshlíð, Rangárþingi eystra.

Deiliskipulagssvæðið er jörðin öll sem afmarkast af landamörkum Aurasels til suðurs, landamörkum Vestur- Sámsstaða til vesturs, landamörkum Mið-Sámsstaða til norðurs og landamörkum Fögruhlíðar til austurs.  Jörðin er alls u.þ.b. 134 ha. 

Innan jarðar verða þrjú svæði skipulögð til frístundabyggðar, sem mun rúma allt að 16 frístundahúsalóðir.  Aðkoma inn á jörðina er um Fljótshlíðarveg og aðkomuveg  inn á svæðið við Sámsstaði. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings eystra 2003-2015.

 

Hrafntinnusker, deiliskipulag og umhverfisskýrsla skálasvæðis á hálendi Rangárþings ytra

Skálasvæðið við Hrafntinnusker er innan svæðis miðhálendisins og fellur það undir lög um mat á umhverfisáhrifum áætlana skv. lögum nr. 105/2006. Svæðið fellur undir þjóðlendur sbr. úrskurð óbyggðanefndar og 2. gr.laga nr. 58/1998 um þjóðlendur

Deiliskipulag þetta nær til 1ha svæðis við Hrafntinnusker sem er í 1.140m hæð yfir sjó. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2002-2014 og einnig í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022, sem er í lögbundnu staðfestingarferli.


Hvanngil, deiliskipulag og umhverfisskýrsla skálasvæðis á hálendi

Rangárþings ytra

Hvanngil er um 3 km suður af Álftavatni og er við Fjallabaksleið syðri, rétt norðan

Mýrdalsjökuls.

Deiliskipulagið nær til tveggja svæða og samanlögð stærð þeirra er um 2 ha. Ferðafélag Íslands festi kaup á skálunum í Hvanngili árið 2002 og núv. byggingar eru 1 skáli byggður 1994, 1 hesthús með gistiaðstöðu byggt 1963, 1 skálavarðarhús byggt 1993 og 1 salernishús byggt 1996. Tvö tjaldsvæði eru á svæðinu.

Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2002-2014 og einnig í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022, sem er í lögbundnu staðfestingarferli.

 

Deiliskipulag hálendismiðstöðvar að Hrauneyjum, Rangárþingi ytra.

Deiliskipulagið nær til um 6 ha lóðar Hálendismiðstöðvarinnar Hrauneyja,

landnr. 179274. Deiliskipulagið tekur til byggingarreits fyrir stækkun hálendismiðstöðvarinnar, sem felur í sér stækkun á núverandi gistirými og byggingarreits fyrir fræðslustofu.

Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010 - 2022,

þar er svæðið skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði.

Eldra deiliskipulag unnið af Litlu Teiknistofunni, dags. í júní 1993 m/síðari

breytingum, er fellt úr gildi.Aðkoma að Hrauneyjum er af Landvegi 26 og aðkomuvegi að hálendismiðstöðinni.

Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2002-2014 og einnig í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022, sem er í lögbundnu staðfestingarferli.

 

Steinkusel, deiliskipulag 4. frístundahúsalóða úr landi Efra-Sels,

Rangárþingi ytra.

Deiliskipulagið nær til Steinkusels, landnr. 165021, sem er um 5 ha. spilda.

Deiliskipulagið tekur til fjögurra nýrra frístundalóða þar sem heimilt verður að

byggja frístundahús og gestahús eða geymslu.

Deiliskipulagið er í samræmi við tillögu að aðalskipulagi Rangárþings ytra

2010-2022 sem er í endurskoðun en þar er svæðið skilgreint sem frístundasvæði. Aðkoma að Steinkuseli er um Bjallaveg 272 og aðkomuveg að frístundasvæðinu.

Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2002-2014 og einnig í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022, sem er í lögbundnu staðfestingarferli.

 

-------------------------------------------------------------------------------------------------------

Samkvæmt  1. mgr. 26.gr. skipulags- og byggingarlaga nr 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar.

 

Haukadalur lóð 5, á norðursvæði, breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar, Rangárþingi ytra

Breytingin felur í sér breytingar á gildandi greinargerð skipulagsins gr. 2.3 og 2.4.

Í grein 2.3 er bætt við setningu sem segir „ Heimilt skal að byggja tvö hús á hverri lóð, enda sé stærð þeirra innan marka sem tilgreind eru í grein 2.4“

Í grein 2.4 er breytingin á þá vegu að heimilt verður að byggja allt að 250m2 brúttó, þ.e. 180m2 á aðalhúsi og annað hús allt að 70m2. 

Að auki er byggingarreitur á lóð nr. 5 stækkaður  og færður ofar í lóðina.

Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2002-2014 og einnig í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022, sem er í lögbundnu staðfestingarferli.

 

-------------------------------------------------------------------------------------------------------

 

Uppdrættir og önnur meðfylgjandi gögn liggja frammi á skrifstofu byggingar- og skipulagsfulltrúa, Ormsvelli 1, Hvolsvelli frá 23. júní  til og með 21. júlí n.k.

 

Athugasemdafrestur er til kl 16.00, þriðjudaginn 3. ágúst 2010. Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu byggingar- og skipulagsfulltrúa, fyrir lok ofangreinds frests. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkir henni. 

 

netföng hjá skipulags- og byggingarfulltrúa:

runar@hvolsvollur.is og byggingarfulltrui@rang.is

 

 

 

 

Nánari lýsingu á ofangreindum skipulagstillögum er hægt að skoða á heimasíðum sveitarfélaganna:

Ásahreppur - http://www.asahreppur.is/

Rangárþing eystra - http://www.hvolsvollur.is/

Rangárþings ytra - http://www.rangarthingytra.is/

 

 

 

 

f.h. hreppsnefndar Ásahrepps

f.h. Rangárþings eystra

f.h. Rangárþings ytra

 

Hvolsvelli  23. júní 2010

 

_________________________

Rúnar Guðmundsson

skipulags- og byggingarfulltrúi

Rangárþings bs.




Til baka