Byggingar- og skipulagsmál


Byggingar- og skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs
Ormsvöllur 1, 860 Hvolsvöllur
Kt. 530407-0200
Sími: 487-1200
 
Fax: 487-1414


Síma- og viðtalstímar: kl. 09:00-12:00 og 11:00-12:00
Netfang: byggingarfulltrui[hjá]rang.is

Starfsmenn:
Rúnar Guðmundsson, byggingar- og skipulagsfulltrúi

Netfang: runar[hjá]hvolsvollur.is 

Ingibjörg Gunnarsdóttir, ritari
Netfang: byggingarfulltrui[hjá]rang.is

Árni Þorgilsson, aðstoðarmaður
Netfang: arni[hjá]hvolsvollur.is

 
Eyðublöð til útprentunar: 
 
Umsókn um byggingarleyfi (pdf)
 
 


 

Byggingar- og skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs.
Byggðasamlagið var stofnað og tók til starfa í mars 2007. Það þjónar allri Rangárvallasýslu og eru 3 sveitarfélög aðilar að því, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Ásahreppur.

Stjórn Byggingar- og skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs:

 

Aðalmenn Varamenn
Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður Ágúst Ingi Ólafsson
Örn Þórðarson, varaformaður Sigurbjartur Pálsson
Egill Sigurðsson, meðstjórnandi. Erlingur Freyr Jensson
 




Meðferð skipulags- og byggingarmála er samkvæmt ákvæðum laga nr. 73/1997 

Umsóknir um byggingarleyfi og framkvæmdaleyfi skulu lagðar inn hjá byggingar- og skipulagsfulltrúa sem fer yfir umsóknir og athugar hvort með fylgi nauðsynleg gögn. Byggingar- og skipulagsfulltrúi leggur umsóknir fyrir skipulags- og byggingarnefndir þegar tilskilin gögn hafa verið lögð fram. Skipulags- og byggingarnefndir afgreiða umsóknir sem uppfylla skilyrði skipulags- og byggingarlaga og reglugerða. Sveitarstjórn þarf að staðfesta afgreiðslur skipulags- og byggingarnefnda.

 

Skipulagsnefnd fjallar um og gerir tillögur um afgreiðslur á skipulagstillögum. 

 

Byggingar- og skipulagsfulltrúi sér um að auglýsa skipulagstillögur samkvæmt heimild sveitarstjórnar.

 

Framkvæmdaaðilar gera tillögur að deiliskipulagi þar sem nauðsyn ber til. Framkvæmdaaðilar geta gert tillögur að breytingu á aðalskipulagi ef það er nauðsynlegt vegna framkvæmda eða afgreiðslu á tillögu að deiliskipulagi. Sveitarstjórn annast gerð aðalskipulags. Svæðisskipulög taka yfir fleiri en eitt sveitarfélag og eru gerð í samstarfi sveitarstjórna sem skulu mynda um það samvinnunefnd og einnig á vegum Skipulagsstofnunar og Samvinnunefndar um svæðisskipulag miðhálendis Íslands.