Eldgos í Eyjafjallajökli
Hér er að finna ýmsar upplýsingar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Vefmyndavélar:
Svifryksmælar:
Hvolsvöllur - mælirinn er fenginn að láni frá Reykjavíkurborg og er sá mælir merktur sem
færanleg mælistöð. Þar undir er hægt að skoða gröf og töflur sem sýna mælingar aftur í tímann.
Heimaland - Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis rekur
færanlega loftgæðastöð fyrir Kópavogsbæ. Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli var stöðin lánuð til Umhverfisstofnunar og er hún núna staðsett á Heimalandi undir Eyjafjöllum. Stöðin er sjálfvirk og mælir styrk brennisteins (H2S og SO2), svifryks og köfnunarefnissambanda. Einnig er hægt að skoða gögn af svifryksmæli staðsettum í Vík á sömu vefslóð.
Hjá verðurstofunni er hægt að finna upplýsingar um skjálftavirkni, þennslu, óróa, vatnafar og fleiri mælingar sem tengjast gosinu í Eyjafjallajökli.
- Eldsumbrot. Veðurstofan gefur reglulega út fréttir af stöðu gossins.
- Jarðskjálftar. Hér er að finna jarðskjálftakort fyrir Mýrdalsjökul og Eyjafjallajökul.

Jarðvísindastofnun Háskóla Íalands. Vísindamenn frá jarðvísindastofnun rannsaka umbrotin í Eyjafjallajökli. Á vef þeirra er að finna ýmsan skemmtilegan fróðleik um gosið nú og fyrri umbrot.
Viðbrögð við öskufalli
Matvælastofnun. Á vef MAST má finna upplýsingar fyrir bændur vegna eldgoss í Eyjafjallajökli. Viðbrögð vegna öskufalls ofl.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands. Vefur Hsu hefur að geyma ýmsan fróðleik og hagnýt ráð varðandi gos í Eyjafjallajökli og öskufalli. Hægt er að senda inn sýni eða óska eftir því að tekin verði sýni af neysluvatni á þeim svæðum sem orðið hefur vart öskufalls.
Vegagerðin. Upplýsingar og tilkynningar um sérstakar lokanir eða stöðu vega á svæðinu.
Iceland.is - sérstakur vefur fyrir erlenda ferðamenn um stöðu mála vegna eldgossins. News in english for travellers to Iceland.