
|
|
|||
|
|
|||
Vagni og Guðmundi eru færðar þakkir fyrir þeirra störf við rekstur þjónustumiðstöðvanna.
Fyrst um sinn mun Sigrún starfa á skrifstofu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð en jafnframt mun hún starfa að hluta ýmist á Kirkjubæjarklaustri, í Vík, Heimalandi eða á Hvolsvelli. Meginverkefni hennar er að sinna eftirmálum eldgossins í Eyjafjallajökli sem snúa að sveitarfélögum, íbúum og uppbyggingarstarfi.
Þjónustan er opin öllum þeim sem hafa orðið fyrir áhrifum og þurfa aðstoð vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Sigrún verður tengiliður ráðuneyta og undirstofnanna þeirra við sveitarfélög og almenning.
Sigrún Árnadóttir starfaði um langt árabil hjá Rauða krossi Íslands, lengst af sem framkvæmdastjóri. Síðustu ár hefur hún verið í framhaldsnámi og rekið eigið ráðgjafarfyrirtæki. Sigrún er boðin velkomin til starfa. Hægt er að hafa samband við Sigrúnu í síma 861 7683 eða í gegnum netfangið sigruna@rls.is.