133. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, þriðjudaginn 15. júní 2010 Kl. 16:00
Mætt: Ísólfur Gylfi Pálmason, , Guðlaug Ósk Svansdóttir, Lilja Einarsdóttir, Elvar Eyvindsson, Kristín Þórðardóttir, Guðmundur Ólafsson, Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri og Haukur G. Kristjánsson, sem lengsta setu á í sveitarstjórn, setti fundinn og stjórnaði 1. lið dagskrárinnar.
Fundargerð ritaði Ágúst Ingi Ólafsson.
Þetta gerðist:
- Haukur Guðni Kristjánsson bauð nýkjörna sveitarstjórn velkomna til starfa um leið og hann óskaði eftir athugasemdum við fundarboðið.
Engar athugasemdir komu fram og var þá gengið til kjörs oddvita.
- Kosning oddvita til eins árs
Guðlaug Ósk Svansdóttir kjörin með 5 atkv. tveir sitja hjá EE og KÞ.
Guðlaug Ósk Svansdóttir tók við stjórn fundarins.
- Kosning varaoddvita til eins árs
Haukur Guðni Kristjánsson kjörinn með 5 atkv. tveir sitja hjá EE og KÞ.
- Ráðning sveitarstjóra
Guðmundur Ólafsson óskaði eftir að bera fram eftirfarandi tillögu:
Í samræmi við stefnuskrá Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og óháðra er hér með lagt til að staða sveitarstjóra verði auglýst til umsóknar og að hæfasti umsækjandinn verði valinn úr hópi umsækjenda.
Greinargerð:
Fyrir nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar var á stefnuskrá framboðsins að auglýsa stöðu sveitarstjóra og að hæfasti einstaklingurinn yrði valinn úr hópi umsækjenda. Framboðið lagði þetta til vegna þeirrar þjóðfélagsumræðu sem hefur átt sér á Íslandi um almennt vantraust á stjórnmálamönnum. Í þeirri umræðu hefur komið fram að eftirspurn er eftir fólki í stjórnunarstöður í almannaþágu úr hópi fagfólks. Vinstrihreyfingin grænt framboð og óháð í Rangárþingi eystra lögðu einnig fram sína tillögu í stefnuskrá vegna háværrar kröfu um aukið og virkt lýðræði. Við teljum að staða sveitarstjóra
sem sé auglýst hafi lýðræðislegra yfirbragð en staða sveitarstjóra þar sem fulltrúi eins stjórnmálaafls í sveitarstjórn situr.
Tillagan felld með 4 atkvæðum gegn 1 GÓ, tveir sátu hjá EE og KÞ.
Gerð er tillaga um að Ísólfur Gylfi Pálmason verði ráðinn sveitarstjóri og oddvita og formanni byggðarráðs verði falið að semja við hann.
Samþykkt með 5 atkvæðum. Tveir sátu hjá EE og KÞ.
Bókun frá Guðmundi Ólafssyni, fulltrúa VG
Í ljósi þess að tillaga Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og óháðra, þess efnis að staða sveitarstjóra verði auglýst, var felld af meirihluta sveitarstjórnar og það sé ljóst að slíkt sé ekki valkostur viljum við styðja Ísólf Gylfa Pálmason í stöðu sveitarstjóra. Við óskum eftir góðu samstarfi við hann sem og aðra sveitarstjórnarfulltrúa í öllum góðum málum.
- Ályktun sveitarstjórnar vegna smábátahafnar í Landeyjahöfn
Sveitarstjórn Rangárþings eystra fagnar framkvæmdum við Landeyjahöfn, sem eiga eftir að hafa mikil og góð áhrif á mannlíf í Rangárþingi og samvinnu sveitarfélagsins við Vestmannaeyjar. Sveitarstjórnin hvetur samgönguráðherra, ríkisstjórn og Alþingi eindregið að sjá til þess að smábátahöfn verði gerð sem allra fyrst við höfnina. Einnig verði komið upp sjósetningarbraut sem nýtast mun björgunaraðilum. Þessar framkvæmdir eru mjög hagstæðar meðan vinnuvélar eru á staðnum, skapa öryggi sjófarenda og munu auka notagildi þessa myndarlega mannvirkis.
Ályktunin borin upp og samþykkt samhljóða.
- Ályktun frá sveitarstjórn Rangárþings eystra vegna fyrirhleðslumála
Sveitarstjórn Rangárþings eystra hvetur stjórnvöld til þess að tryggja fjármagn svo Vegagerðin og Landgræðslan geti, þegar í stað, hafið uppbyggingu og endurnýjun varnargarða og fyrirhleðslur í Rangárþingi. Tryggja þarf að ekki verði meiri skaði, en orðið er, vegna flóða í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli. Spár um áframhaldandi flóð sýna að nauðsynlegt er að flýta þessum framkvæmdum eins og kostur er.
Ályktunin borin upp og samþykkt samhljóða.
- Tillögur um breytingu á nefndaskipan
Sveitarstjórn Rangárþings eystra gerir eftirfarandi tillögu að breytingum á nefndaskipan sveitarfélagsins eða viðbótum við verkefni nefndanna:
- Fræðslunefnd: Ein fræðslunefnd verði starfrækt fyrir Leikskólann Örk og Hvolsskóla. Skólanefnd og leikskólanefnd verði lagðar niður. Hins vegar fundi fræðslunefndin sérstaklega um málefni hvorrar stofnunar fyrir sig. Kappkostað að föst regla komist á hvenær nefndin fundar.
- Velferðarnefnd: Nefndin fjallar um málefni aldraðra og fatlaðra og verði fagráð fyrir Kirkjuhvol – Sérstök rekstrarstjórn verður lögð niður fyrir Kirkjuhvol en rekstur Kirkjuhvols falli beint undir sveitarstjórn eins og aðrar stofnanir hreppsins. Engu að síður verður sérstakur reikningur gerður vegna reksturs Kirkjuhvols.
- Heilsu, íþrótta og æskulýðsnefnd: Hér er bætt við starf nefndarinnar sérstakri heilsueflingu og forvörnum.
- Atvinnu, ferða -og markaðsmálanefnd: Tillaga er gerð um að fresta skipan nefndarinnar til haustsins.
- Rekstrarstjórn Söguseturs – lögð niður – og í staðinn kemur fagráð Söguseturs sem er tengiliður sveitarstjórnar við rekstraraðila Söguseturs og kaupfélagssafns.
- Umhverfis- og náttúruverndarnefnd: Náttúruvernd bætist við heiti nefndarinnar.
- Skurðarnefnd: Gerð er tillaga að því að störf framræslunefnda sveitarfélaga falla undir starfsemi búnaðarfélaga í gömlu hreppunum. Tillögur búnaðarfélaganna berist sveitarstjóra til frekari ákvörðunar.
- Starfsnefnd um málefni fatlaðra: ( Þessi nefnd starfar tímabundið meðan á yfirfærslu verkefnisins stendur frá ríki til sveitarfélaga )
Ef og þegar þessar breytingar hafa átt sér stað verða gerðar breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp Rangárþings eystra.
Tillagan borin upp og samþykkt samhljóða. samhljóða
- Kosning í nefndir og ráð
|
Byggðaráð til eins árs |
Varamenn |
|
Haukur G. Kristjánsson, formaður
|
Guðlaug Ósk Svansdóttir
|
|
Lilja Einarsdóttir |
Ísólfur G. Pálmason |
|
Kristín Þórðardóttir |
Elvar Eyvindsson |
|
Yfirkjörstjórn |
Varamenn |
|
Ásgeir Árnason
|
Ómar Halldórsson
|
|
Bára Sólmundsdóttir |
Brynjólfur Bjarnason |
|
Árni Þorgilsson
sbr. 8. gr. laga um almannavarnir nr. 94/1962 |
Haraldur Konráðsson
|
|
Almannvarnanefnd |
Varamaður |
|
Ísólfur G. Pálmason
|
Guðlaug Ósk Svansdóttir
|
Rangárþings eystra, Rangárþings ytra, Ásahrepps, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. M.v.t. 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002
|
Barnavarnanefnd (2) |
Varamenn |
|
Oddur Árnason
|
Gunnhildur Jóhannsdóttir
|
|
Kristín Aradóttir |
Gyða Björgvinsdóttir |
Byggðasamlag um Byggingar- og skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs. - sameiginleg Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Ásahreppur.
|
Skipulags- og byggingarnefnd |
Varamenn |
|
Ágúst Kristjánsson
|
Haukur G. Kristjánsson
|
|
Guðlaug Ósk Svansdóttir |
Ísólfur G. Pálmason |
|
Elvar Eyvindsson |
|
|
Fagráð Söguseturs |
Varamenn |
|
Ísólfur G. Pálmason
|
Haukur G. Kristjánsson
|
|
Þuríður H. Aradóttir |
Guðlaug Ósk Svansdóttir |
|
Lárus Ágúst Bragason |
Katrín Óskarsdóttir |
Sameiginleg nefnd Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu.
|
Félagsmálanefnd Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu (2) |
Varamenn |
|
Ásta Brynjólfsdóttir
|
Solveig Eysteinsdóttir
|
|
Björk Arnardóttir |
Guðbjörg Júlídóttir |
|
Fjallskilanefnd Fljótshlíðar (3) |
Varamenn |
|
Eggert Pálsson
|
|
|
|
|
|
|
Fjallskilanefnd Vestur-Eyjafjalla (3) |
Varamenn |
|
Ásgeir Árnason
|
|
|
|
|
|
sbr. 14. gr. laga um grunnskóla nr.66/1995 og sbr. 9. gr. laga um leikskóla nr. 78/1998
|
Fræðslunefnd Grunnskóla og Leikskóla (5) |
Varamenn |
|
Guðlaug Ósk Svansdóttir
|
Harpa Viðarsdóttir
|
|
Guðmunda Þorsteinsdóttir |
Helga Guðrún Lárusdóttir |
|
Oddný Steina Valsdóttir |
Benedikt Benediktsson |
|
Esther Sigurpálsdóttir |
Birkir Arnar Tómasson |
|
Lárus Ágúst Bragason |
Hulda Dóra Eysteinsdóttir |
|
Héraðsbókasafns Rangæinga- Stjórn (3) |
Varamenn |
|
Ásta Brynjólfsdóttir
|
Arndís Sveinsdóttir
|
|
Agnes Antonsdóttir |
Kristín Hrefna Leifsdóttir |
|
Katrín Óskarsdóttir |
Kristín Aradóttir |
|
Héraðsnefnd (3) fulltrúar |
Varamenn |
|
Ísólfur G. Pálmason
|
Guðlaug Ósk Svansdóttir
|
|
Haukur G. Kristjánsson |
Lilja Einarsdóttir |
|
Elvar Eyvindsson |
Kristín Þórðardóttir |
|
Jafnréttisnefnd (3) |
Varamenn |
|
Ingibjörg Marmundsdóttir
|
Helga Guðrún Lárusdóttir
|
|
Ragnhildur Hrund Jónsdóttir |
Sigurður Bjarni Sveinsson |
|
Önundur Björnsson |
Esther Sigurpálsdóttir |
|
Landbúnaðarnefnd (5) |
Varamenn |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Skipun í nefndina frestað.
|
Menningarnefnd (5) |
Varamenn |
|
Gunnhildur Jónsdóttir
|
Sigurður Bjarni Sveinsson
|
|
Helga Guðrún Lárusdóttir |
Katrín Birna Viðarsdóttir |
|
Margrét Tryggvadóttir |
Eggert Birgisson |
|
Þröstur Freyr Sigfússon |
Hans G. Magnússon |
|
Ívar Þormarsson |
Ingibjörg Erlingsdóttir |
|
Orku- og veitunefnd (5) |
Varamenn |
|
Lárus Einarsson
|
Sigurður Geirsson
|
|
Sveinbjörn Jónsson |
Jón Valur Baldursson |
|
Óli Kristinn Ottósson |
Sigurður Bjarni Sveinsson |
|
Birkir A. Tómasson |
Ragnheiður Jónsdóttir |
|
Elvar Eyvindsson |
Kristján F. Kristjánsson |
|
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5) |
Varamenn |
|
Sigrún Þórarinsdóttir
|
Þorsteinn Jónsson
|
|
Ásta Halla Ólafsdóttir |
Ragna Aðalbjörnsdóttir |
|
Agnes Antonsdóttir |
Guðni Úlfar Ingólfsson |
|
Esther Sigurpálsdóttir |
Erlendur Árnason |
|
Ingibjörg Erlingsdóttir |
Guðmundur Ólafsson |
|
Samgöngu- og umferðanefnd (5) |
Varamenn |
|
Sveinn Kristján Rúnarsson
|
Sigrún Þórarinsdóttir
|
|
Ómar Halldórsson |
Sigurður Bjarni Sveinsson |
|
Sigurður Jónsson |
Auður J Sigurðardóttir |
|
Birkir A. Tómasson |
Helgi Þorsteinsson |
|
Kristinn Jónsson |
Ármann Elvarsson |
skv. 69. gr.sveitarstjórnarlaga nr. 78/1998
|
Skoðunarmenn (2) |
Varamenn |
|
Guðmundur Svavarsson |
Sveinbjörn Jónsson |
|
Eiríkur Davíðsson |
Árný Hrund Svavarsdóttir |
|
Starfsnefnd um málefni fatlaðra (7) |
Varamenn |
|
Ásta Brynjólfsdóttir
|
Birna Sigurðardóttir
|
|
Solveig Eysteinsdóttir |
Erla Berglind Sigurðardóttir |
|
Gunnhildur Jóhannsdóttir |
Ólöf Jónsdóttir |
|
Björk Arnardóttir |
Inga Birna Baldursdóttir |
|
Esther Sigurpálsdóttir |
Katrín Óskarsdóttir |
|
Arndís Soffía Sigurðardóttir |
Gyða Björgvinsdóttir |
Skipun starfsnefndar um málefni fatlaðra frestað.
|
Velferðarnefnd (5) |
Varamenn |
|
Sigrún Þórarinsdóttir
|
Auður Jóna Sigurðardóttir
|
|
Bergur Pálsson |
Margrét Guðjónsdóttir |
|
Solveig Eysteinsdóttir |
Ásta Halla Ólafsdóttir |
|
Gyða Björgvinsdóttir |
Ólafía Ásbjörnsdóttir |
|
Kristín Aradóttir |
Björk Arnardóttir |
|
Heilsu- íþótta- og æskulýðsnefnd (5) |
Varamenn |
|
Lilja Einarsdóttir
|
Tinna Erlingsdóttir
|
|
Lárus Viðar Stefánsson |
Helga Guðrún Lárusdóttir |
|
Benedikt Benediktsson |
Björgvin Daníelsson |
|
Guðrún Ósk Birgisdóttir |
Ingveldur Guðný Sveinsdóttir |
|
Helgi Jens Hlíðdal |
Eydís Guðmundsdóttir |
Löggiltur endurskoðandi / endurskoðunarfyrirtæki.
Einar Sveinbjörnsson, KPMG Endurskoðun
Undirbúningsnefnd þar sem sveitarfélögin þrjú Skaftárhrepp, Mýrdalshrepp og Rangárþing eystra tilnefndu hvert einn aðila úr sveitarstjórn og einn úr ferðaþjónustunni. Þá eru einnig fulltrúar frá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands, Háskólafélagi Suðurlands og Markaðsstofu Suðurlands http://www.vik.is/Geopark/Samantekt%20%C3%A1%20Geopark.htm
|
Geopark undirbúningsnefnd (1) |
Varamaður |
|
Ísólfur Gylfi Pálmason
|
Guðlaug Ósk Svansdóttir
|
|
Brunavarnir Rangárþings bs. |
Varamaður |
|
Ágúst Ingi Ólafsson
|
Ísólfur Gylfi Pálmason
|
|
Sorpstöð Rangárvallarsýslu bs. |
Varamaður |
|
Ísólfur Gylfi Pálmason
|
Ágúst Ingi Ólafsson
|
|
Hula bs. Sorpsamlag Skógum |
Varamenn |
|
Ísólfur Gylfi Pálmason Ágúst Ingi Ólafsson
|
Elvar Eyvindsson Haukur G. Kristjánsson
|
Guðmundur Ólafsson tók til máls og ræddi um möguleika á að fá áheyrnarfulltrúa í stærri nefndum sem VG á ekki fulltrúa í.
Ákveðið að Guðmundur sendi inn tillögu um málið fyrir næsta fund sveitarstjórnar.
Tillögurnar bornar upp og samþykktar samhljóða.
- Starfið framundan og tillaga að næsta fundi sveitarstjórnar.
Guðlaug ræddi um næsta sveitarstjórnarfund sem áformaður er næsta þriðjudag 22. júní kl. 14:00
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 18:00
Ísólfur Gylfi Pálmason
Elvar Eyvindsson
Guðlaug Ósk Svansdóttir
Kristín Þórðardóttir
Lilja Einarsdóttir
Haukur G. Kristjánsson
Guðmundur Ólafsson