134. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, þriðjudaginn 22. júní 2010 Kl. 14:00
Mætt: Ísólfur Gylfi Pálmason, Haukur G. Kristjánsson, Lilja Einarsdóttir, Elvar Eyvindsson, Kristín Þórðardóttir, Guðmundur Ólafsson, Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri og Guðlaug Ósk Svansdóttir, oddviti sem setti fundinn og stjórnaði honum.
Oddviti bauð fundarmenn velkomna um leið og hann leitaði eftir athugasemdum við fundarboðið.
Óskað eftir að leggja fram eftirtalin mál sem ekki voru send út í fundarboði:
- Tillaga Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og óháðra um að komið verði á starfshóp sveitarfélagsins og aðilum í ferðaþjónustu í Rangárþingi eystra til að
vinna að vitundarvakningu Íslendinga á stöðu mála á ferðamannasvæðum sveitarfélagsins.
- Tölvubréf Aðalheiðar Sigurðardóttir dags. 20.06.10, erindi vegna áframhaldandi stuðnings við dagmóður.
- Tillaga um að sveitarstjóri fái heimild til afgreiðslu styrkja innan fjárhagsáætlunar allt að kr. 50.000,-
Fundargerð ritaði Ágúst Ingi Ólafsson.
Dagskrá fundarins
Erindi til sveitarstjórnar:
- Skipulagsstofnun: Umsögn vegna matsskyldu skálasvæðis við Emstrur.
- Böðvar Gíslason: Staðfesting á landsskiptum
- Eigendur Kvoslækjar: Staðfesting á landsskiptum.
- Hinrik Þorsteinsson: Ósk um breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi.
- Skeiðvangur: Ósk um rekstrarstyrk vegna barna- og unglingastarfs.
- Fjallskilasjóður Fljótshlíðar: Beiðni um styrk vegna áburðarkaupa.
- Mýrdalshreppur: Ósk um samstarf um greiningu á rekstri dvalar- og hjúkrunarheimila.
- Samband íslenskra sveitarfélaga: Kjör fulltrúa á landsþing Sambandsins.
- Málþing ehf. : Stofnun lóðar úr landi Efra-Hvols.
- JÁS Lögmenn ehf.: Verksamningur.
- Samkomulag vegna átaksverkefnis á gossvæðinu við Eyjafjallajökul.
- Félag eldri borgara í Rangárvallasýslu: Bætt aðstaða við heitan pott.
- Landform: Deiliskipulag á Emstrum, drög að matslýsingu vegna Efri-Botna.
- Guðmundur Viðarsson: Umsókn um styrk vegna reiðskóla.
- Finnur Bjarki Tryggvason: Beiðni um styrk vegna útgáfu á geisladiski til styrktar Mænuskaðastofnun Íslands.
- Ráðningarsamningur sveitarstjóra.
- Tillaga um sumarhlé sveitarstjórnar.
- Tillaga. Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir að sveitarstjóri fái heimild til afgreiðslu styrkja innan fjárhagsáætlunar allt að kr. 50.000,- varð liður 21
- Tölvubréf Aðalheiðar Sigurðardóttur, dags. 20.06.10 varðandi áframhaldandi stuðning við dagmóður.
Fundargerðir v/ nefnda sveitarfélagsins
-
Fjallskilanefnd Fljótshlíðar dags. 24.05.10
- 20. fundur æskulýðs- og íþróttanefndar dags. 02.06.10
Fundargerðir v/ samvinnu í sveitarfélögum
- 97. fundur sameiginlegrar barnaverndarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu dags. 28.04.10
- 98. fundur sameiginlegrar barnaverndarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu dags. 28.05.10
- 22. fundur stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs. dags. 18.05.10
- 126. fundur skólanefndar Tónlistarskóla Rangæinga dags. 28.04.10
- 127. Fundur skólanefndar Tónlistarskóla Rangæinga dags. 31.05.10
- Aðalfundur Strandarvallar ehf. dags. 28.04.10
- 29. fundur félagsmálanefndar dags. 19.05.10
- 35. Fundur byggingarnefndar Rangárþings dags. 02.06.10
Fundargerðir v/ samvinnu sunnlenskra sveitarfélaga SASS
- SASS: 433. fundur stjórnar dags. 14.05.10
- 121. Stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands dags. 17.05.10
- SASS: Eldgos í Eyjafjallajökli og afleiðingar þess, bréf dags. 18.05.10
- SASS: Sameiginlegt þjónustusvæði um málefni fatlaðra á Suðurlandi, bréf dags. 14.05.10
- SASS: Tillaga um skipulag málefna fatlaðra á starfssvæði SASS, bréf dags. 30.03.10, afgreiðslu málsins frestað á fundi sveitarstjórnar
8. apríl sl.
Önnur mál og upplýsingar:
- Skógaveita: Gjaldskrá 2010
- Hrafn Jóhannsson: Samrit af bréfi til Önundar Björnssonar, formanns Veiðifélags Affalls dags. 18.11.09 vegna veiðistaða í Affalli.
- Vegagerðin: Endurnýjun á beiðni um styrk til lagfæringa á styrkvegum, bréf dags. 20.04.10
- Jafnréttisstofa: Skyldur sveitarfélaga samkvæmt jafnréttislögum nr. 10/2008, bréf dags. 09.06.10
- Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum: Bréf dags. 07.05.10, beiðni um styrk vegna útgáfu 100 örnefna vítt og breytt um landið.
- Brunabót: Styrktarsjóður EBÍ, bréf dags. 06.05.10
- Ríkislögreglustjórinn: Vinnufundur vegna Eldgoss í Eyjafjallajökli 25. maí 2010.
- Velferðarvaktin: Samþykkt um að beina því til sveitarfélaganna að leita allra leiða til að tryggja ungmennum 17 og 18 ára vinnu í sumar.
- Umhverfisráðuneytið: Staða verkefnis um skilgreiningu á vegum innan miðhálendislínunnar og aðgerðaáætlun umhverfisráðherra gegn utanvegaakstri,
bréf dags. 11.06.10
- Félag leikskólakennara: Ráðning í stöður stjórnenda og kennara í leikskólum án auglýsinga, bréf dags. 15.06.10
- Capacent: Úttekt á fjármálalegri stöðu sveitarfélagsins í kjölfar sveitarstjórnarkosninga, bréf dags. 14.06.10
Gengið til dagskrár:
Erindi til sveitarstjórnar:
- 1005027 Skipulagsstofnun: Umsögn vegna matsskyldu skálasvæðis við Emstrur.
Það er mat sveitarstjórnar Rangárþings eystra og skipulagsfulltrúa Rangárþings bs.
að þar sem deiliskipulagstillaga gerir ekki ráð fyrir neinum meiriháttar
breytingum í Emstrum, sé ekki ástæða til að krefjast mats á umhverfisáhrifum.
- 1005026 Böðvar Gíslason: Staðfesting á landsskiptum.
Um er að ræða lóð undir véla- og verkfærageymslu með landnr. 219324,
Stærð 7.000 fm.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við landsskiptin.
- 1005028 Eigendur Kvoslækjar: Staðfesting á landsskiptum.
Um er að ræða 25.000 fm lóð í kringum íbúðarhús og útihús með heitið
Kvoslækur 1, landnr. 219404.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við landsskiptin.
- 1006003 Hinrik Þorsteinsson: Ósk um breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi.
Sveitarstjóra og byggingarfulltrúa falið að skoða málið nánar.
- 1006004 Skeiðvangur: Ósk um rekstrarstyrk vegna unglingastarfs.
Samþykkt samhljóða að veita styrk kr. 130.000,-
- 1006005 Fjallskilasjóður Fljótshlíðar: Beiðni um styrk vegna áburðarkaupa.
Styrkveitingu frestað vegna óvissuástands um gróður á afréttinum.
- 1006006 Mýrdalshreppur: Ósk um samstarf um greiningu á rekstri dvalar- og hjúkrunarheimila. Sveitarstjórar Mýrdals- Skarfárhrepps og Rangárþings eystra hafa áður rætt saman um málið. Hugmyndin er að fá Atvinnuþróunarfélag Suðurlands til þess að gera rekstrarúttekt og leggja fram hugmyndir um rekstrarform hugsanlega í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Sveitarstjóra falið að svara erindinu og hafa samband við Atvinnuþróunarfélag Suðurlands.
Samþykkt samhljóða að vinna að málinu í samvinnu við framangreinda aðila.
- 1006007 Samband íslenskra sveitarfélaga: Kjör fulltrúa á landsþing Sambandsins.
Ísólfur Gylfi Pálmason, aðalmaður og Guðlaug Ósk Svansdóttir, varamaður.
Elvar Eyvindsson, aðalmaður og Guðmundur Ólafsson, varamaður.
- 1006001 Málþing ehf. : Stofnun lóðar úr landi Efra-Hvols.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar.
- 1006009 JÁS Lögmenn ehf.: Verksamningur.
Samþykkt samhljóða að staðfesta verksamninginn.
- 1006008 Samkomulag vegna átaksverkefnis á gossvæðinu við Eyjafjallajökul.
Samningurinn lagður fram til kynningar. Sveitarstjóra falið að skoða endurnýjunarþörf á þessu samkomulagi.
- 1006048 Félag eldri borgara í Rangárvallasýslu: Bætt aðstaða við heitan pott.
Sveitarstjóra falið að leysa málið.
- 1006049 Landform: Deiliskipulag á Emstrum, drög að matslýsingu vegna Efri-Botna.
Lagt fram til kynningar.
- 1006015 Guðmundur Viðarsson: Umsókn um styrk vegna reiðskóla fyrir börn.
Samþykkt samhljóða að veita styrk kr. 50.000,-
- 1006050 Finnur Bjarki Tryggvason: Beiðni um styrk vegna útgáfu á geisladiski til styrktar Mænuskaðastofnun Íslands.Samþykkt samhljóða að veita styrk kr. 100.000,-
- Ráðningarsamningur sveitarstjóra.
Ráðningarsamningur við Ísólf Gylfa Pálmason, sveitarstjóra lagður fram.
Samningurinn samþykktur samhljóða.
- Tillaga um sumarhlé sveitarstjórnar.
Lagt er til að sveitarstjórn geri hlé á reglulegum fundahöldum á tímabilinu 22. júní til og með 9. september 2010 og komi næst saman fimmtudaginn 9. september 2010.
Lagt er til að byggðarráði verði veitt umboð til fullnaðarafgreiðslu mála á meðan sveitarstjórn er í fundahléi.
Tillagan samþykkt samhljóða.
- Tillaga Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og óháðra um að komið verði á starfshóp sveitarfélagsins og aðilum í ferðaþjónustu í Rangárþingi eystra til að vinna að vitundarvakningu Íslendinga á stöðu mála á ferðamannasvæðum sveitarfélagsins. Þessi starfshópur taki til starfa strax og skili tillögum sínum nægilega fljótt til að þær megi nýtast á þessu ferðamannasumri.
Greinargerð
Afbókanir Íslendinga á ferðaþjónustustaði í sveitarfélaginu er umhugsunarefni en þær eru enn að berast þrátt fyrir að ástandið sé víðast hvar orðið mjög gott. Við teljum ljóst að þar geti sveitarfélagið gripið þar inní án verulegs tilkostnaðar í samvinnu við aðila í ferðaþjónustu. Þar virðist að miklu leyti vera á ferð hræðsla vegna fréttaflutnings en fulltrúar sveitarfélagsins verða að halda vöku gagnvart æsifrétta-mennsku og fræða almenning um stöðu mála af yfirvegun. Finna þarf lausnir í sameiningu til að draga úr skaða og í ljósi þess að nú fer að líða að lokum júnímánaðar þarf að hafa á hraðar hendur. Við teljum hefðbundna fundi með aðilum ferðaþjónustu ekki vera hentuga heldur sé líklegra til árangurs að virkja áhugasama aðila ferðaþjónustu til vinnunnar. Við sjáum fyrir okkur að þessi starfshópur fundi 2-3 sinnum og skili fljótt af sér tillögum um það sem unnt er að gera strax og án mikils tilkostnaðar til að stuðla að vitundarvakningu Íslendinga um hvernig ástandið er hjá okkur í raun og veru. Í tengslum við þetta þarf að athuga hvort unnt sé að sækja fé til iðnaðarráðherra sem blés til markaðsátaks nú fyrr í vor vegna ógn eldgossins við ferðaþjónustuna.
Oddviti lagði fram eftirfarandi bókun:
Varðandi tillögu VG og óháðra um skipan í stafshóp sveitarfélagsins og aðila ferðaþjónustunnar í Rangárþingi eystra:
Sveitarstjórn og markaðs- og kynningarfulltrúi hafa þegar hafist handa varðandi vitundarvakningu Íslendinga um stöðu ferðaþjónustunnar í sveitarfélaginu. Þau hafa og eru m.a. í sambandi við Ólöfu Ýr Atadóttur, ferðamálastjóra og Einar Karl Haraldsson kynningarfulltrúa forsætisráðuneytisins og formanns verkefnisins „Inspired by Iceland“ vegna þessa máls. Tónleikar við Seljalandsfoss 1. júlí verður hluti af þessari vitundarvakningu.
Sveitarstjórn gerir að tillögu sinni að sveitarstjóri, markaðs- og kynningarfulltrúi og tveir fulltrúar úr ferðaþjónustunni í sveitarfélaginu komi að þessum starfshópi. Hópurinn vinni eins hratt og auðið er að þessu máli.
- Skipun nefnda – framhald frá síðasta fundi sveitarstjórnar.
1. Landbúnaðarnefnd
Aðalmenn Varamenn
Oddný Steina Valsdóttir Bergur Pálsson
Ragna Aðalbjörnsdóttir Sigrún Þórarinsdóttir
Guðni Ragnarsson Brynjólfur Bjarnason
Guðmundur Viðarsson Baldur Björnsson
Ragnheiður Jónsdóttir Pétur Halldórsson
2. Starfsnefnd um málefni fatlaðra 1 fulltrúi og einn til vara
Aðalmenn Varamenn
María Rósa Einarsdóttir Hólmfríður Kristjánsdóttir
Tillaga VG og óháðra
Vinstrihreyfingin grænt framboð og óháð leggja til að framboðið fái áheyrnarfulltrúa í þeim nefndum þar sem það hefur ekki fastann nefndarmann. Áheyrnarfulltrúar hafi tillögurétt og málfrelsi. Eftirfarandi eru tilnefningar á áheyrnarfulltrúum og í hvaða nefndir:
Skipulags og bygginganefnd Óskar Jónsson
Félagsmálanefnd Gyða Björgvinsdóttir
Héraðsbókasafn Rang. Eydís Guðmundsdóttir
Jafnréttisnefnd Ragnheiður Jónsdóttir
Orku og veitunefnd Ragnheiður Jónsdóttir
Samgöngu og umferðarnefnd Sara Ástþórsdóttir
Greinargerð
Í ljósi þess að Vinstrihreyfingin grænt framboð og óháð hafa ekki á að skipa nefndarmönnum í öllum nefndum leggjum við til að við fáum áheyrnarfulltrúa til að geta fylgst með starfi nefndanna. Með þessu er verið að tryggja að sjónarmið fulltrúa allra flokka fái að komast að. Við teljum óeðlilegt að eitt stjórnmálaafl sé útilokað frá umræðum í ákveðnum nefndum. Við teljum heillavænlegast að sem flest sjónarmið fái að njóta sín á vettvangi sveitarfélagsins.
Það er lykilatriði lýðræðislegra vinnubragða að áheyrnarfulltrúar njóti tjáningarfrelsis og geti lagt fram tillögur á nefndarfundum.
Lögð fram eftirfarandi breytingartillaga.
Varðandi tillögu VG og óháðra um áheyrnarfulltrúa í nefndum sveitarfélagsins um tillögurétt og málfrelsi í þeim nefndum sem þeir hafa ekki fulltrúa í vegna atkvæðavægis. Sveitarstjórn fellst á að VG og óháðir eigi áheyrnarfulltrúa í Héraðsbókasafni Rangæinga, Jafnréttisnefnd, Orku- og veitunefnd og Samgöngu og umferðarnefnd. Sveitarstjórn bendir á að Skipulags- og byggingarnefnd svo og Félagsmálanefnd eru samvinnuverkefni fleiri sveitarfélaga. Ekki verður greitt fyrir áheyrnarfulltrúa.
Breytingartillagan borin upp og samþykkt samhljóða með fyrirvara um samþykki nefndanna.
Tillaga VG og óháðra
Vinstrihreyfingin grænt framboð og óháð beinir því til sveitarstjórnar að fulltrúar minnihluta í sveitarstjórn gegni formennsku í nefndum. Fjöldi nefnda sem fulltrúar minnihluta gegna formennsku í verði í hlutfalli við atkvæðafjölda.
Greinargerð
Þessi tillaga er lögð fram í samræmi við stefnuskrá Vinstri- hreyfingarinnar græns framboðs og óháðra fyrir nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar. Við leggjum til að áður en nefndirnar taki til starfa og skipti með sér verkum komi sveitarstjórn sér saman um ákveðnar nefndir þar sem fulltrúar minnihluta muni gegna formennsku. Við teljum að fyrirkomuleg sem þetta muni leiða til ábyrgari samvinnu og samskipta á milli fulltrúa minnihluta og meirihluta og virkja með betri hætti starfskrafta minnihluta. Eftir sveitarstjórnarkosningarnar sjáum við að víða um land eru þessi skref tekin íbúum til mikillar ánægju.
Tillagan borin upp og felld með 4 atkvæðum, 1 greiðir atkvæði með tillögunni GÓ og tveir sátu hjá EE og KÞ.
Oddviti leggur fram eftirfarandi bókun:
Varðandi tillögu VG og óháðra um formennsku minnihluta sveitarstjórnar í nefndum sveitarfélagsins bendir meirihluti sveitarstjórnar Rangárþings eystra á að nú þegar hefur meirihlutinn samþykkt að nýta sér ekki fullan rétt í skipan fulltrúa í nefndum eftir atkvæðavægi. Auk þess fellst meirihluti sveitarstjórnar á að fulltrúar VG og óháðra hafi áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt í nokkrum nefndum sem framboðið hefði ella ekki átt fulltrúa í miðað við úrslit síðustu sveitarstjórnar-kosninga og hafnar tillögunni af þessum ástæðum. Meirihlutinn fagnar áhuga VG og óháðra á nefndarskipan í sveitarfélaginu og bendir á að skipaðir fulltrúar í nefndum sveitarfélagsins geta haft jafn mikil áhrif í nefndarstarfi hvort heldur þeir eru almennir fulltrúar eða formenn nefnda.
- Tölvubréf Aðalheiðar Sigurðardóttur, dags. 20.06.10 varðandi áframhaldandi stuðning við dagmóður.
Sveitarstjórn tekur vel í erindið. Sveitarstjóra falið vinna að frekari útfærslu.
- Tillaga um umboð til sveitarstjóra til að afgreiða styrki innan ákveðinna marka.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir að sveitarstjóri fái heimild til afgreiðslu styrkja innan fjárhagsáætlunar allt að kr. 50 þúsund.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðir v/ nefnda sveitarfélagsins
- Fjallskilanefnd Fljótshlíðar dags. 24.05.10. Staðfest.
- 20. fundur æskulýðs- og íþróttanefndar dags. 02.06.10 Staðfest.
Fundargerðir v/ samvinnu í sveitarfélögum
- 97. fundur sameiginlegrar barnaverndarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu dags. 28.04.10 Staðfest.
- 98. fundur sameiginlegrar barnaverndarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu dags. 28.05.10 Staðfest.
- 22. fundur stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs. dags. 18.05.10 Staðfest.
- 126. fundur skólanefndar Tónlistarskóla Rangæinga dags. 28.04.10 Staðfest.
- 127. fundur skólanefndar Tónlistarskóla Rangæinga dags. 31.05.10 Staðfest.
- Aðalfundur Strandarvallar ehf. dags. 28.04.10 lögð fram til kynningar.
- 29. fundur félagsmálanefndar dags. 19.05.10 Staðfest.
- 35. fundur byggingarnefndar Rangárþings dags. 02.06.10
Liðir nr. 426 v/ Hvolstún 15,breyttar teikningar,427 v/Eystri-Hóll, breytt og stækkað hesthús,428 Koltursey, byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi,429 Kirkjulækjarkot lóð 1c byggingarleyfi fyrir gestahúsi.
Þeir liðir fundargerðarinnar sem tilheyra Rangárþingi eystra staðfestir.
Fundargerðir og bréf til kynningar v/ samvinnu sunnlenskra sveitarfélaga SASS
- SASS: 433. fundur stjórnar dags. 14.05.10.
- 121. Stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands dags. 17.05.10
- 1005024 SASS: Eldgos í Eyjafjallajökli og afleiðingar þess, bréf dags. 18.05.10
Sveitarstjórn þakkar hlýjar kveðjur og stuðning við íbúa sveitarfélagsins.
- 1005023 SASS: Sameiginlegt þjónustusvæði um málefni fatlaðra á Suðurlandi, bréf dags. 14.05.10
- SASS: Tillaga um skipulag málefna fatlaðra á starfssvæði SASS, bréf dags. 30.03.10, afgreiðslu málsins frestað á fundi sveitarstjórnar 8. apríl sl.
- Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir að vinna að málefnum fatlaðra samkvæmt tillögum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
Mál til kynningar og upplýsingar:
- Skógaveita: Gjaldskrá 2010
- 1006054 Hrafn Jóhannsson: Samrit af bréfi til Önundar Björnssonar, formanns Veiðifélags Affalls dags. 18.11.09 vegna veiðistaða í Affalli.
- 1005011 Vegagerðin: Endurnýjun á beiðni um styrk til lagfæringa á styrkvegum, bréf dags. 20.04.10.
- 1006010 Jafnréttisstofa: Skyldur sveitarfélaga samkvæmt jafnréttislögum nr. 10/2008, bréf dags. 09.06.10
- 106023 Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum: Bréf dags. 07.05.10, beiðni um styrk vegna útgáfu 100 örnefna vítt og breytt um landið.
- 1005001 Brunabót: Styrktarsjóður EBÍ, bréf dags. 06.05.10
- 1006053 Ríkislögreglustjórinn: Vinnufundur vegna Eldgoss í Eyjafjallajökli 25. maí 2010.
- 1006025 Velferðarvaktin: Samþykkt um að beina því til sveitarfélaganna að leita allra leiða til að tryggja ungmennum 17 og 18 ára vinnu í sumar.
- 1006026 Umhverfisráðuneytið: Staða verkefnis um skilgreiningu á vegum innan miðhálendislínunnar og aðgerðaáætlun umhverfisráðherra gegn utanvegaakstri, bréf dags. 11.06.10 Sveitarstjóra falið að senda erindið til vinnslu í umhverfis- og náttúruverndarnefnd sveitarfélagins.
- 106051 Félag leikskólakennara: Ráðning í stöður stjórnenda og kennara í leikskólum án auglýsinga, bréf dags. 15.06.10
- 1006052 Capacent: Úttekt á fjármálalegri stöðu sveitarfélagsins í kjölfar sveitarstjórnarkosninga, bréf dags. 14.06.10
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 17:40
Ísólfur Gylfi Pálmason
Elvar Eyvindsson
Guðlaug Ósk Svansdóttir
Kristín Þórðardóttir
Lilja Einarsdóttir
Haukur G. Kristjánsson
Guðmundur Ólafsson