2.6.2010 16:00

20. fundur Æskulýðs og íþróttanefndar Rangárþings eystra

20. fundur æskulýðs og íþróttaráðs í Rangárþingi eystra haldin í Hvolnum 2. júní 2010 kl 16:00.

Mættir: Halldóra Magnúsdóttir, Ingveldur Guðný, Ásta Halla Ólafsdóttir, Björgvin Daníelsson og Þröstur Sigfússon.

  1. Halldóra setti fundinn.

  2. Þröstur sagði að ráðstefna varðandi málþing félagsmiðstöðvar hefði fallið niður vegna gossins. Eins er með allar fyrirhugaðar gönguferðir um svæðið falla niður hér vegna öskuryks í umhverfinu. Félagsmiðstöðin fór sameiginlega ferð með skólanum með 9. bekk að Flúðum, lokahófið verður svo hér á Hvolsvelli á morgun 3. júní. Félagsmiðstöðin mun sjá um ballið á 17. Júní.
    Félagsmiðstöðin er á milli vita í húsnæðismálum eins og staðan er núna og ekki hafa verið teknar ákvarðanir um flutning. Þröstur myndi vilja vera áfram í skóla og fá herbergi til viðbótar geymslunni eða annað viðunandi húsnæði. Ásta Halla stakk uppá hvort skoða megi Hulduland. 
  3. Ungmennaráð sem skipa á í fyrir 15. september: Nefndin leggur til að ný æskulýðs og íþróttanefnd skipi í ráðið.
  4. Vinnuskólinn: Ásta tilkynnti að allt væri að fara af stað og hefur  fullmannað í flokkstjórastöður. Hún er enn óánægð með laun flokksstjóra og vill að þau hækki. Ef illa gengur að vera úti með börnin vegna öskufoks þá munu þau taka að sér að þrífa félagsheimili sveitarfélagsins. 2 fatlaðir einstaklingar hafa sótt um í unglingavinnunni hálfan daginn með stuðning. Stefnt er að samstarfi við Dímon varðandi eldri nemendur vinnuskólans vegna leikja og tómstundanámsskeiðs. Áhættumat vinnuskólans vegna trygginga og annars er í vinnslu og mun það verða kynnt á fundi með foreldrum 7. Júni kl 20:00 þar sem flokkstjórar verða einnig kynntir og starfssemi vinnuskólans.
  5. Búið er að ráða mann í hálft starf varðandi umsjón útiíþróttasvæðis og lýsir nefndin ánægju sinni með það.
  6. Nefndin vill minna skólayfirvöld á að hafa samfellu í skólastarfi  til hliðsjónar við komandi stundartöflugerð næsta vetrar.
  7. Nefndin vill athuga hvort ekki sé hægt að hafa einhvers konar afþreyingu fyrir börnin undan Eyjafjöllum á vegum vinnuskólans einu sinni eða tvisvar á viku til að létta þeim lundina og öndunina. 
  8. Halldóra þakkar nefndinni fyrir mjög gott starf á kjörtímabilinu og allir segja takk sömuleiðis. Eins vill nefndin koma á framfæri þakklæti til allra samstarfsaðila  á kjörtímabilinu.


Fundi slitið kl. 17:20.

 




Til baka