Félagsleg aðstoð og stuðningsþjónusta (liðveisla) við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir

Félags og skólaþjónusta Rangár- og vestur Skaftafellssýslu leitar að starfsmönnum til að sinna félagslegri stoð- og stuðningsþjónustu (félagslegri liðveislu) við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir á Hellu og Hvolsvelli.

Starfið felur í sér að veita félagslegan stuðning sem miðar einkum að því að rjúfa félagslega einangrun þjónustuþega og hefur það markmið að styðja við og hvetja til þátttöku þeirra í félags- og tómstundastarfi o.fl.

Félagsleg stoð- og stuðningsþjónusta tekur mið af einstaklingsbundnum þörfum og miðar að valdeflingu og hvatningu til virkrar þátttöku í samfélaginu. Leitast er við að koma til móts við einstaklingsbundnar óskir og þarfir þjónustuþega.

Starfsmönnum í Félagslegri stoð- og stuðningsþjónustu ber að hafa í heiðri trúnað í samskiptum við þjónustuþega og gæta þagmælsku um þau atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að koma á móts við óskir þjónustuþega, sem geta verið bæði börn og fullorðnir einstaklingar, að félagslegri afþreyingu.
  • Að fylgja þjónustuþega og veita honum stuðning í félagslegri afþreyingu. Félagsleg afþreying getur verið af ýmsum toga, m.a. verið göngutúrar, bíóferðir, sundferðir, kaffihúsaferðir, verslunarferðir, auk spjalls og félagsskapar.
  • Að hitta þjónustuþega reglulega samkvæmt samningi og samþykktum klukkustundafjölda á mánuði.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Engrar sérstakrar menntunar er krafist.
  • Mikilvægt að vera lipur í mannlegum samskipum.
  • Samviskusemi, frumkvæði og áreiðanleiki.
  • Stundvísi og heiðarleiki
  • Mælst er til að starfsmaður geti talað íslensku.
  • Að sýna þjónustuþega sínum og aðstandendum hans virðingu og skilning í samskiptum.
  • Að vera með hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Félags- og skólaþjónustu Rangár- og vestur Skaftafellssýslu.
  • Gott að hafa þekkingu eða reynslu í vinnu með fólki með fatlanir.

 

Starfmenn í félagslegri stoð- og stuðningsþjónustu fá tímavinnukaup og gilda launakjör samkvæmt kjarasamningum FOSS, Félagi opinberra starfsmanna á Suðurlandi.

 

Umsóknum skal skilað á netfangið petrina@felagsmal.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Petrína Sigurðardóttir ráðgjafi í síma 487-8125