Gönguleiðir

Margar skemmtilegar og fjölbreyttar gönguleiðir eru í boði í Rangárþingi eystra fyrir alla fjölskylduna. Leiðirnar geta tekið allt frá innan við klukkustund til nokkurra daga. Öllum er velkomið að njóta náttúrunnar á útivistarsvæðum í sveitarfélaginu.
Við hvetum gesti til að ganga vel um umhverfið og skilja ekki eftir sig rusl á víðavangi. Skiljið við staðinn eins og þið viljið koma að honum þannig að það sé öllum til sóma sem koma til með að njóta þess sem náttúra okkar hefur uppá að bjóða.

Hvolsfjall, Sólheimahringurinn
Ein vinsælasta gönguleið Hvolsvellinga er leiðin upp með Nýbýlavegi að Akri. Þaðan er hægt að ganga meðfram limgerðinu vestan við nýja kirkjugarðinn niður í þorp aftur eða halda áfram að Lynghaga og niður völlinn niður að Sólheimum til baka, framhjá reiðvellinum og upp eftir slóðanum í Miðöldunni sem búið er að planta í. Einnig er hægt að ganga upp Bjallann hjá Stórólfshvolskirkju og þaðan inn eftir fjallinu eftir göngustíg sem hefur verið lagður þar. Hægt er að velja um mislangar og erfiðar gönguleiðir.

Krappi
Krappi er hrauntunga sem gengur fram milli Fiskár og Eystri-Rangár. Þar er vel gróið og fallegt umhverfi sem býður upp á skemmtilegar gönguleiðir. Vatnsból Hvolsvallar er í Krappa. Nokkrir fossar eru í ánum við Krappa. Tungufoss er í Rangá en Skútufoss og Bæjarfoss í Fiská. Má hugsa sér að labba upp með Fiská að sumarhúsabyggðinni í Reynivallalandi. Þá er þar Gunnarssteinn, merktur af Sögusetri.

Flókastaðargil
Skemmtilegt er að ganga upp Flókastaðargil frá Breiðabólsstað. Um er að ræða gönguleið sem að mestu er eftir kindagötum. Leiðin er ekki mjög erfið en ævintýraleg fyrir börn. Í gilinu er mikið Fílavarp. Efst í gilinu var uppistöðulón og rafstöð hér áður fyrr og var þá vinsælt að fara þangað á sumrin til að synda í lóninu. Þegar upp er komið er yfirleitt gengið beint í suður, þá er komið niður Hákotið við Breiðabólstað. Rétt er að hafa samband við landeigendur og fá leyfi, ef vera skyldu einhverjir stórgripir fyrir neðan gilið.

Tunguskógur -Tumastaðir
Tunguskógur og Tumastaðir eru um 9 km frá Hvolsvelli. Þetta er vinsæll útivistarstaður í Rangárþingi eystra. Hér hafa heimamenn ræktað upp allmikið skóglendi, lagt þar göngustíga og komið fyrir borðum og bekkjum. Þarna er fallegt umhverfi, skjólsamt og mikið fuglalíf. Hægt er að velja um mislangar gönguferðir. Skógrækt Ríkisins hóf rekstur gróðrarstöðvar á Tumastöðum árið 1944 og sveitungar hófu skógrækt í brekkunum í Tungulandi, sem er samliggjandi Tumastöðum árið 1951. Upp úr 1980 hóf hreppurinn stígalagningu í Tunguskógi og fékk meðal annars jarðýtu til að leggja aðalstíginn í brekkunni. Síðan hefur smám saman bæst við stígana og unnið hefur þar verið við grisjun á skóginum. Þá var þar um tíma höggvið umtalsvert af jólatrjám sem fór í afgreiðslu Landgræðslusjóðs og enn höggva Fljótshlíðingar sér þar tré. Stígarnir um Tunguskóg tengjast stígum Skógræktar Ríkisins og öllum er velkomið að njóta skóganna. Tunguskógur er nú í eigu Rangárþings eystra og árið 2006 samþykkti sveitarstjórn að framtíðar útivistarsvæði sveitarfélagsins verði byggt upp í Tunguskógi og vonast sveitarstjórn til þess að íbúar sveitarfélagsins verði duglegir við að nýta sér skóginn til útivistar og kynna svæðið fyrir gestum sínum.


Þríhyrningur
Þríhyrningur er í um 18 km fjarlægð frá Hvolsvelli. Keyrt er upp hjá Vatnsdal að Fiská. Þar er beygt til hægri upp á grasbala og hefst gangan þaðan, upp á fjallið að suð-vestan. Gönguleiðin hefur verið stikuð. Að ganga á fjallið Þríhyrning (678 m) er mjög vinsælt. Þaðan er útsýni mjög gott til allra átta. Fjallið dregur nafn sitt af þremur hornum og á milli þeirra er dalur sem heitir Flosadalur. Segir í Njáls sögu að þar hafi Flosi á Svínafelli og brennumenn falið sig eftir Njálsbrennuna. Í fjallinu framanverðu eru tvö hamragil, Katrínargil og Tómagil. Vanir göngumenn hlaupa þar upp og niður aftur á ½ klukkustund, en eðlilegt er að gefa sér þrjá tíma í fjallgönguna.

Þjófárfoss – Þjófhellir
Fyrir ofan Þríhyrning rennur Þjófá og í henni eru tveir fallegir fossar og hellisskúti sem er mjög vandfundinn. Í þessum helli dvöldu tveir þjófar á árunum 1743-44 og voru þeir hengdir á Þingskálaþingi er þeir náðust. Hægt er að keyra langleiðina að fossinum og hellinum eftir djúpum slóða sem byrjar við Reynifell. Slóðinn er að mestu moldartroðningar en á stöku stað er stórgrýtt. Slóðin einungis fær litlum 4x4 jeppum eða jepplingum.


Bleiksárgljúfur
 Mjög fallegt kjarri vaxið gljúfur. Hægt er að ganga upp með því bæði að austan og vestan. Vestari leiðin er líklega algengari. Þegar ofar kemur er gljúfrið þverhnípt, hyldjúpt en örmjótt. Hægt er að stökkva yfir það, en við þá iðkun hefur orðið manns skaði þegar þar hrapaði til bana Páll Pálsson frá Árkvörn 1876. Enn ofar í gilinu er það fallið saman og þar er hægt að fara yfir og niður hinu megin við það. Í Bleiksárgljúfri var fyrsta Íslenska kvikmyndin tekin upp, en það var myndin Hadda Padda eftir Guðmund Kamban, árið 1923. Fyrir ofan brúnina er grasi vaxin dalur og finna má tóftir af sauðahúsum frá Háamúla og Eyvindarmúla. Fyrir þá sem vilja lengri göngur, þá má hugsa sér að ganga í vestur ofan við Háamúlahnjúk og koma niður hjá Háamúla eða Eyvindarmúla. Ef gengið er í austur mætti koma niður t.d, hjá Bæjargilinu á Barkastöðum sem er mjög fallegt. Bleiksárgljúfur er um 28 km frá Hvolsvelli. Rétt er að hafa samband við landeigendur og fá leyfi.

Tindfjöll
Slóði liggur úr Fljótshlíðinni upp í Tindföll sem fær eru 4x4 ökutækjum. Úr skálunum í Tindfjöllum er vinsæl gönguleið upp að Ými. Í Árbók Ferðafélags Íslands 1960 eru útlistaðar gönguleiðir í Tindfjöll og Eyjafjallajökul, eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal.

Þórólfsfell
Frá Farfuglaheimilinu í Fljótsdal er falleg gönguleið um Þórólfsfell. Gengið er yfir Þórólfsánna á göngubrú við gljúfurendann. Þaðan er gengið upp með gljúfrinu, áleiðis upp. Síðan er haldið í austur og stefnt á að koma svo niður Mögugilið. Þar er gengið undir stórgrýtiskletta og í gegnum hella. Í gilinu eru gríðarlegar móbergsmyndanir og gönguleiðin sannkölluð ævintýraferð. Neðarlega í Mögugilinu er svo Mögugilshellir sem er mjög sérkennilegur blágrýtisdropahellir, sá eini sinnar tegundar í heiminum svo vitað sé. Hann fylltist nú fyrir fáum árum af sandi og möl, væntanlega vegna klakastíflu í gilinu í vorleysingum. Nú hefur hins vegar verið mokað út úr hellinum og hann fær til skoðunar. Undir Þórólfsfelli er fjallakofi í eigu Rangárþings eystra.

Hellisvellir
Á Hellisvöllum var gangnamannakofi sem nú er hruninn en þar er nú að finna hellisskúta sem gist var í. Þegar gengið er um svæðið er að finna þar hlaðið hestalægi í gilskorningi og einnig eru þar tvö falleg gil sem gaman er að ganga í. Frá Hellisvöllum er gönguleið inn með Gilsárgljúfrum upp að Hesti og Meri og þaðan er hægt að ganga yfir í gangnamannakofann á Einhyrningsflötum.

Einhyrningur
Einhyrningur er vinsæll áningastaður fyrir göngugarpa. Fjallið er sem er mjög sérstætt móbergsfjall. Hægt er að ganga upp á hann að sunnan (mótar fyrir göngustíg þegar ofar kemur), upp snarbrattar skriður og koma svo niður grasbrekkurnar að vestan, eða öfugt. Á Einhyrningsflötum er gangnamannakofi í eigu Rangárþings eystra sem er leigður út. Í honum er salernisaðstaða sem er öllum opin. Bílastæði eru við kofann og er lagt upp frá honum.

Markafljótsgljúfur
Markafljótsgljúfur eru hrikaleg gljúfur sem skilja á milli Fljótshlíðarafréttar og Emstrur. Einungis er fært þangað á 4x4 farartækjum. Gljúfrið er um 200 metrar á dýpt þar sem hæst er. Merkt gönguleið byrjar rétt neðan við Emstruskálann og liggur hún niður með Gljúfrinu. Hægt er að ganga niður með gljúfrinu öllu og eru á tveimur stöðum hægt að komast niður í gljúfrið, Litla-land og Stóra-land og eru þar birkiskógar.

Emstrur-Þórsmörk
Gönguleið frá Emstrum í Þórsmörk er mjög skemmtilega dagsferð. Um er að ræða síðasta hluta gönguleiðarinnar frá Landmannlaugum eða “Laugarvegarins” eins og hún er jafnan kölluð. Þá er göngufólk keyrt að morgni inn á Emstrur og genginn 15 – 16 km vegalengd niður í Þórsmörk. Þessi ganga tekur um 5-6 tíma. Leiðin er tiltölulega létt niðurámóti, en leiðin er samt mishæðótt og vaða þarf Þröngá. Hún er lítil jökulhvísl og allajafnan ekki mikið vatnsfall. Margir hafa með sér aukaskó til að vaða í yfir. Bent er á gönguleiðakort, t.d. Páls Ásgeirssonar um gönguleiðina Landmannalaugar – Þórsmörk.

Þórsmörk
Þórsmörk er ein helsta náttúruperla þjóðarinnar og er hún í Rangárþingi eystra. Þangað er aðeins fært á öflugum jeppum. Fjöldamargar gönguleiðir eru í Þórsmörk, ýmist um náttúrulega skóga, á fjallstinda, inn í gljúfur eða upp á jökul. Þórsmörkin er endastöð á einni vinsælustu gönguleið landsins, 4 daga gönguferð eftir “Laugarveginum” frá Landmannalaugum. Einnig er Þórsmörk endastöð ef gengið er yfir Fimmvörðuháls frá Skógum. Gönguleiðir verða ekki frekar tíundaðar hér, en bent er á að til er gönguleiðakort í Þórsmörk.

Merkurkerið
Merkurkerið er inn í Merkurnesi fyrir innan Stóru-Mörk. Hægt er að komast að kerinu á fólksbíl áleiðis inn Þórsmerkurveg. Þetta er ker eða gil sem er hálffalið í fjallshlíðinni. Neðst er þröngt gljúfur sem Sauðá rennur um í hálfgerðum hamragöngum og helli. Framan við kerið sjálft er lágur hryggur sem lokar kerinu og er gengið yfir hann upp í kerið þar sem áin rennur fram eftir að hafa fallið fram hamrana í fossi.

Nauthúsagil
Nauthúsagil er rétt innan við Merkurbæina undir Eyjaföllum. Inn í þessu gili stendur Reynitré eitt mjög gamalt og gríðarstórt. Það vex utan í klettasyllu og erfitt er að komast að því. Fyrir neðan það er svo hyldýpisgljúfur. Á einhverja tuga ára fresti er stofninn orðinn það stór að hefur ekki næga rótfestu og fellur yfir á gilbakkann hinum megin. Upp úr rótinni vex svo nýr stofn. Nú má sjá allavega sex gamla stofna sem liggja þarna yfir gilið og til eru sögur af mönnum sem hafa farið yfir gilið á stofnum sem eru nýfallnir. Nú eru þar fúnir stofnar, en líklega líða ekki mörg ár í að aðalstofninn sem er núna, falli. Þetta tré er líklega formóðir flestra reynitrjáa í landinu í dag. Til eru heimildir um það að Guðbjörg heitin í Múlakoti hafi fengið ber af þessu tré er hún var að koma upp garðinum í Múlakoti. Af þessum trjám og afkomendum þeirra hefur síðan Skógrækt Ríkisins í Múlakoti og síðan á Tumastöðum, árlega tekið ber í sitt uppeldi. Ef gengið er inn með gilinu er komið að 3-4 m háum fossi og undir honum er djúpur hylur sem fyllir á milli hamrana. Hægt er að klifra með hylnum og upp fossinn. Þetta er mikið ævintýri og ósjaldan er einhver sem dettur og lendir þá í hylnum og blotnar.

Stóri Dímon
Stóri Dímon á sér bróðir sem er Litli Dímon. Nafnið er talið koma úr latínu og merkja tvífjöll, eða tveir eins. Þá er einnig sagt að orðið merki heysáta og vissulega minnir Dímon á heysátu, hér á bleikum ökrunum. Við rætur fjallsins er skilti frá Sögusetrinu sem segir frá húskarlavígum Hallgerðar og Bergþóru í Njáls sögu. Þar segir frá vígi Kols, verkstjóra hjá Gunnari á Hlíðarenda, en hann vó Svart sem var húskarl Njáls á Bergþórshvoli. Hann var þar í skógarhöggi í Rauðuskriðum, eins og fjallið hét þá. Fjallið er 178 metra hátt og er það verðugt verkefni, bæði hjá börnum sem fullorðnum að klifra upp á Dímon.

Hamragarðaheiði – Skálahverfi
 Frá tjaldstæðunum í Hamragörðum er skemmtileg gönguleið upp Hamragarðaheiðina og fram á fjallsbrún fyrir ofan Seljaland. Þaðan er gengið eftir brúnunum og komið niður í Skálahverfið. Hægt er að létta sér leiðina með því að aka áleiðis upp brekkurnar, eftir slóðanum sem liggur upp á Eyjafjallajökul.

Paradísarhellir
 Frá gömlu Seljalandsréttunum er merkt gönguleið að Paradísarhelli, líklega um einn kílómeter. Hellirinn er nokkuð upp í klettunum og eru þar keðjur til að klifra upp í hellinn.

 Í sögunni um Önnu á Stóru–Borg kemur Paradísarhellir mjög við sögu. Anna sem var auðkona og af höfðingjaættum lagði ástir á smaladreng er Hjalti hét. Páll bróðir Önnu reiddist mjög þessar ástir og vildi ná til Hjalta. Hann faldist í Paradísarhelli í fjölda ára og sagt er að hann hafi getið með Önnu 8 börn þaðan. Sagan endar á því að Páll bróðir fellur með hesti í Markarfljóti og kemur þá Hjalti til og bjargar honum og var hann tekinn í sátt upp úr því.

Skógar-Skógá Á skógum eru ágætir göngustígar upp í skóginn sem er fyrir ofan Héraðsskólann. Það eru tröppur fyrir norðan skólann og þegar upp er komið er stytta af Þorsteini Erlingssyni, skáldi. Aðeins síðar er nokkuð brattur stígur upp að rústum gömlu beitarhúsanna þar sem gott er að tylla sér. Þá tekur við annar brattur kafli og bekkur en að því loknu er sigurinn unnin og útsýnið frábært. Stígurinn heldur síðan í boga yfir gilið og liðast síðan niður brekkurnar í mjög fallegum greniskógi. Upp með Skógarfossi er stígur upp fyrir fossinn og í Skógánni fyrir ofan eru fallegir fossar sem gaman er að skoða. Skógar eru byrjunarstöð fyrir göngu yfir Fimmvörðuháls.

Fimmvörðuháls
Mjög vinsæl gönguleið er frá Skógum yfir Fimmvörðuháls yfir í Þórsmörk. Ef gengin er öll leiðin þá er hún um 24 kílómetrar. Hægt að gista í skála á leiðinni og fara hana á tveimur dögum. Skálinn er í um 1100 metra hæð. Leiðin er brött og allra veðra von þegar komið er upp milli jöklanna, Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. Vert er að fylgjast með veðurspá og hafa með sér góðan útbúnað. Vinsælt er að láta keyra sig upp að skála og ganga hluta leiðarinnar á einum degi, niður í Þórsmörk. Gengið er niður á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls og er gengið eftir Heljarstíg og er hann það brattur að settar hafa verið keðjur til að halda sér í.

Kvernugil
Rétt fyrir austan Byggðasafnið í Skógum er Kvernugil. Þetta er mjög fallegt gil sem mjög gaman er að ganga um.

Ströndin-Skógafjara-Hallgeirseyjarfjara
Hægt er að komast niður í Skógafjöru fyrir þá sem vilja upplifa og ganga í fjörunni. Þá er hægt að komast niður í Hallgeirseyjarfjöru í Landeyjum frá tjaldstæðunum í Grandavör.

Tekið saman af bræðrunum Kristni, Sveinbirni og Þorsteini Jónssonum, en sá síðastnefndi sá um skráningu
.