Staður: Miðbæjartúnið við sveitamarkaðinn
Stund: Laugardaginn 24. júlí 2010
Kveikt verður í kolunum kl. 18:00
 

Hvolsvöllur.is er grillhátíð fyrir alla fjölskylduna og er haldin í samvinnu við Rangárþing eystra, Sláturfélag Suðurlands, Sunnlenska sveitamarkaðinn og framtaksama einstaklinga í sveitarfélaginu.

SS, grænmetisbændur og Önundarhorn verða með grilltilboð á Sunnlenska sveitamarkaðnum í tilefni dagsins.

Það eina sem þið þurfið að gera er að koma með mat, drykki, meðlæti og góða skapið á grillið. - Nú er um að gera að grípa tækifærið og versla í heimabyggð.

Fjölmargir fjölhæfir einstaklingar úr héraðinu stíga á stokk og sjá um tónlist fram eftir nóttu.
Takið daginn frá (og nóttina). Hittumst, grillum og skemmtum okkur saman.

Undirbúningsnefndin

Söngtextar