Hausthátíð 2011 



Kjötsúpuhátíðin Hvolsvelli
 
2. - 4. september



                    

Dagskrá 


 

2. september - Föstudagur

18:00-20.30 Súpukvöld. Íbúar sveitarfélagsins bjóða heim í súpu. Húsin/garðarnir verða merktir með hvítri veifu/flaggi.

21:00 Brenna og sléttusöngur. Allir eru hvattir til að koma með hljóðfæri með sér til að spila á. Eftir brennuna heldur gegnur fylkingin saman í félagsheimilið Hvol þar sem verður fjölskyldudansleikur. Húsið opnar þegar hópurinn mætir.

22.30 Harmonikku -
Fjölskyldudansleikur í Hvolnum Hvolsvelli. Minnum á útivistartíma barnanna og hvetjum foreldra og forráðamenn til að fylgja þeim á þennan skemmtilega dansleik.



3. september - Laugardagur

9.30  Sveitamarkaðurinn opnar

11.00 Opnun heilsustígsins við Íþróttahúsið. Gönguferð og leiðsögn um heilsustíginn á Hvolsvelli

13.00 Dagskrá hefst við Sveitamarkaðinn. Hlynur og Bessi setja dagskránna.

13.10 Hrepparígurinn

13.40 Boltaleikni - áheitaleikur og skemmtun

14.00 Leikir fyrir börnin

14.00 Karlakór Rangæinga

14.10 Umhverfisverðlaun Rangárþings eystra afhent

14.10 Sýning á gripum í hönnunarkeppninni og verðlaunaafhending. Hönnun á flík eða fylgihlut úr íslenskri ull

14.40 Sýning á þjóðbúningum í eigu íbúa.

15.00 SS kjötsúpan framreidd

        Stone Stones - tónlistaratriði

15.30 Afhending verðlauna

        - Ljósin í bænum

        - uppboð á útiljósmyndum ljósmyndaklúbbsins 860+

16.30 Söngkeppni barnanna

17.00 Dagskrárlok

17.00 Hvolsvallarvöllur. KFR-KB

23.00 Dansleikur í Hvolnum. Hljómsveitin Dans á rósum spilar fyrir dansi. 18 ára aldurstakmark.

 

4. september - sunnudagur
sjá dagskrá Heilsuvikunnar

Einstakir dagskrárliðir:

  • Markaður - Sunnlenski sveitamarkaðurinn heldur utan um markaðsstemninguna. Áhugasamir um sölubása geta haft samband í síma 483-3062
  • Uppboð á útiljósmyndum í miðbænum. Allar myndirnar sem hafa verið til sýnis í sumar verða seldar og teknar niður 3. september.
  • Hönnunarkeppni: unnið úr íslenskri ull. Veitt verða verðlaun fyrir fallegustu flíkina/fylgihlutinn og frumlegustu hönnunina.
  • Ljósin í bænum: íbúar eru hvattir til að skreyta hús sín og garða. Götur eru hvattar til að taka sig saman. Veitt verða verðlaun fyrir best skreytta húsið/garðinn og best skreyttu götuna.
  • Hrepparígur/vinnustaðarígu​r
  • Boltaleikni. Þrælskemmtilegur áheitaleikur KFR ofl. Breytingar gætu orðið á liðinu vegna leiks KFR á laugardag.
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.

Allar skráningar á dagskrárliði og frekari upplýsingar má nálgast hjá Þuríði Aradóttur, markaðs- og kynningarfulltrúa í síma 488-4200 eða á netfangið thuri@hvolsvollur.is.