Laugardaginn 4.febrúar verður hið árlega þorrablót Hvolhreppinga haldið í Félagsheimilinu Hvoli.
Miðasala verður í Hvolnum (litla sal) miðvikudaginn 1. febrúar frá 20-21.
Miðaverð er 6.000 krónur og posi er ekki á staðnum.
Ekki verður selt inn eftir borðhald.
Aldurstakmark er 18 ár.
Þorrablótsnefnd mun úthluta borðum eins og undanfarin ár.Húsið opnar kl: 19 og blótið verður sett stundvíslega kl: 20.
Hver og einn verður að sjá um sín drykkjarföng (áfengt og óáfengt t.d. gos).
Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi.
Íbúar Njálsgerðis.