05.02.2012

Tónleikar við kertaljós í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð.


Næstkomandi sunnudag þ. 5. febrúar halda Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari og Richard Simm, píanóleikari, tónleika í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð. 

Tónleikarnir hefjast kl. 15.00.

Á efnisskránni verða hugljúf verk eftir Schumann, Gluck, Wieniawski, Fauré og Brahms.

Aðgangseyrir er kr. 2.000.-, en frítt er fyrir börn í fylgd með fullorðnum.

Boðið verður upp á kaffi í hlénu.


Til baka