
Kvenfélagið Eining í Hvolhrepp ákvað á haustdögum að efna til fjáröflunar og skemmta samborgurum sínum um leið. Kvenfélaginu hafa eins og vant er borist ýmsar beiðnir um styrki. Og til þess að geta styrkt þarf fjáröflun!
Formönnum allra kvenfélaga í sýslunni var sent bréf þar sem ballið var kynnt og nú hafa formenn örugglega rætt þetta við félagsmenn sína. Svo vonum við að félagar ásamt mökum eða makalausir muni fjölmenna í Hvolinn. Sem sagt léttar veitingar, skemmtun og dansleikur laugardaginn 17. Mars. Ballið er öllum opið sem eru 20 ára og eldri. Auglýsing mun birtast í Búkollu 7-14. mars.
Takið daginn frá og pússið dansskóna. Nú skal gaman!