Menningarmál



Kjötsúpuhátíð - Hausthátíð

Árleg fjölskyldu- og menningarhátíð Rangárþings eystra, kjötsúpuhátíð, verði fest í sessi með virkri þáttöku einstaklinga og fyrirtækja í sveitarfélaginu.

 

Efling Söguseturs
Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á að efla starfsemi Sögusetursins en hlutverk þess er að kynna menningararfleifð okkar fyrir ferðamönnum og stuðla að því að enn fleiri ferðamenn leggi leið sína í sveitarfélagið. Jafnframt gegnir Sögusetrið mikilvægu hlutverki í menntun skólabarna og framhaldsskólanema.


Áhersla á menningararfleifð íbúa Rangárþings eystra
Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á að varðveita og halda á lofti menningararfleifð svæðisins. Meginverkefni menningarnefndar sveitarfélagsins markast af þeirri áherslu sveitarstjórnar.


Efling Gallerý Orms
Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á að kynna menningararfleifð svæðisins fyrir íbúum þess og gestum. Lögð verður áhersla á sýningar er tengjast íbúum sveitarfélagsins. Starfsemi gallerýsins er mikilvæg viðbót við starfsemi Sögusetursins, styrkir starfsemi þess og eykur fjölbreytni.


Einkennislistaverk sveitarfélagsins


Fyrirtæki - samstarfssamningar við menningarhópa
Rangárþing eystra styður ýmsa menningarhópa. Stefnt verði að því að slíkir styrkir verði ákvarðaðir í formi rekstrar- og verksamninga þar sem skilgreind verði samvinnuverkefni sveitarfélagsins og hópanna, svo sem aðkomu að hátíðum og uppákomum á vegum sveitarfélagsins og þátttaka í umhverfisátaki.