09.02.2012

157. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra

157. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, fimmtudaginn 9. febrúar 2012 kl. 12:00

Mætt: Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, Lilja Einarsdóttir, Haukur G. Kristjánsson, Esther Sigurpálsdóttir, varamaður Kristínar Þórðardóttur, Guðmundur Ólafsson, Elvar Eyvindsson, Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri og Guðlaug Ósk Svansdóttir, oddviti sem setti fundinn og stjórnaði honum. 

Oddviti bauð fundarmenn velkomna um leið og hann leitaði eftir athugasemdum við fundarboðið. Engar athugasemdir komu fram.
Fundargerð ritaði Ágúst Ingi Ólafsson.

Erindi til sveitarstjórnar:
  1. Lóðaumsókn dags. 23.01.12. Jónas Örn Hreiðarsson kt. 180582-4879 sækir um lóð nr. 23 við Hvolstún.
    Samþykkt samhljóða.

  2. Drög að reglum um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrisþegum.
    Samþykkt samhljóða.

  3. Heiða Björk Scheving: Ósk um launalaust leyfi frá 1. maí til 31. júlí n.k.
    Samþykkt samhljóða.

  4. Sóknarnefnd Stórólfshvolskirkju: Erindi vegna fyrirhugaðrar kirkjubyggingar.
    Bókun sveitarstjórnar:
    Í samráði við formenn sóknar- og byggingarnefndar Stórólfshvolskirkju samþykkir sveitarstjórn að fresta afgreiðslu málsins í ljósi nýrra gagna, en fela sveitarstjóra að vinna að því áfram í samvinnu við aðila málsins.

  5. Útleiga á Fossbúð – ákvarðanataka framhald byggðarráðsfundar.
    Samþykkt samhljóða að leigja Elíasi Rúnari Kristjánssyni og Arnari Frey Ólafssyni Fossbúð til 2ja ára að teknu tilliti til samróma afstöðu meðeigenda hússins sem er Ungmennafélagið, Kvenfélagið og Leikfélagið.

  6. Ragnar Guðjónsson kt. 021123-2509, ósk um staðfestingu á landsskiptum. Um er að ræða sumarhúsalóð sem fær heitið Syðri-Kvíhólmi, lóð með landnr. 220729, stærð 1,2 ha. Lóðin er tekin úr Syðri-Kvíhólma, landnr. 163801. Lögbýlisréttur fylgir áfram Syðri-Kvíhólma, landnr. 163801.
    Rúnar Guðmundsson, byggingar- og skipulagsfulltrúi mætir á fundinn kl. 13:45.
    Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við landsskiptin.

  7. Kristín Jónsdóttir kt. 240532-7519, ósk um staðfestingu á landsskiptum. Um er að ræða ló með heitið Skarðshlíð 2, lóð, landnr. 220697, stærð 1.247fm. Lóðinni er skipt út úr Skarðshlíð 2, landnr. 163719. Lögbýlisréttur fylgir áfram Skarðshlíð 2, landnr. 163719.
    Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við landsskiptin.

  8. Drög að reglum um félagslega heimaþjónustu í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
    Drögin samþykkt samhljóða.

  9. Samningur Árborgar um þjónustu við fatlaða. Framhald umræðu frá síðasta byggðarráðsfundi.
    Samningurinn samþykktur samhljóða.

  10. Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbótarbúningsklefa auk búningsklefa við sundlaug og líkamsrækt.

    Bókun D- lista.
    D listi Sjálfstæðismanna átelur þau vinnubrögð meirihluta sveitarstjórnar að ráðist skuli í stórframkvæmd sem þessa án þess að það sé formlega tekið fyrir á sveitarstjórnarfundi og afgreitt. Framkvæmdin hefur einungis verið lauslega rædd við afgreiðslu fjárhagsáætlunar og ekki hefur sundurliðuð kostnaðaráætlun verið gerð. Þá hefur ekki verið rætt hver þörfin er fyrir rými eins og æfingasal, en nú er einn slíkur rekinn af einkaaðila og teljum við vafasamt að sveitarfélagið fari í samkeppni við hann. D listinn hefur lýst þeirri skoðun sinni að ekki sé rétt að ráðast í þessa framkvæmd núna, en leggur til að útiklefar verði byggðir að þessu sinni og þar látið við sitja. Framkvæmdin mun auka skuldir sveitarfélagsins talsvert og teljum við það óvarlegt eins og árferðið er.

    Vegna líklegrar mótbókunar meirihlutans viljum við taka fram að víst er það rétt að á síðasta kjörtímabili var teiknuð svipuð aðstaða og til stóð að ráðast í framkvæmdir. Þegar efnahagshrunið reið yfir haustið 2008 var fallið frá þessum áformum. Í kjölfarið voru teikningar endurskoðaðar með tilliti til þess að minnka fjárfestinguna verulega og til að hægt væri að byggja í þremur áföngum. Sú útfærsla er mun ódýrari en sú sem nú liggur fyrir. Við leggjum til að þessi teikningadrög verði dregin fram og fyrsti áfangi framkvæmdur.


    Bókun B-lista
    Meirihluti sveitarstjórnar Rangárþings eystra sér ekki ástæður til að svara þeim rangfærslum sem fram koma í bókun D-lista sjálfstæðismanna.

    Bókun vegna umsóknar um byggingarleyfi.
    Sveitarstjórn samþykkir viðbyggingu við íþróttahús, viðbótar búningsklefa, líkamsræktarsal auk útibúningsklefa og gufubaðs við sundlaug eins og fram kemur í hjálögðum gögnum.
    Samþykkt með 5 atkvæðum 2 sitja hjá EE og ES.

  11. Tillaga frá Rangárþingi eystra og íþróttafélögunum KFR og Dímon um að sveitarstjórn ráði íþrótta- og æskulýðsfulltrúa í 50% starf á móti íþróttafélögunum svo hægt sé að ráða í 100% starf.
    Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og felur sveitarstjóra að vinna útfærslu málsins.
    Samþykkt með 4 atkvæðum 3 sátu hjá EE,ES og GÓ.

    Bókun D og V lista.
    Við tökum vel i framkomnar hugmyndir þótt augljóslega séu þær einungis á undirbúningsstigi enn og í því ljósi leggjum við til að ákvörðun þessari verði slegið á frest og útfærsla starfsins og hugsanlegt starfshlutfall könnuð nánar, möguleikar á samstarfi við önnur sveitarfélög í sýslunni skoðaðir og starfslýsing mótuð áður en frekari ákvarðanir í þessa veru verða teknar.

  12. Fjárhagsáætlun Kirkjuhvols 2012 lögð fram. Áætlunin samþykkt samhljóða.

  13. VSÓ ráðgjöf, viðbragðsáætlun dags. 06.10.11
    Samþykkt að taka þátt í viðbragðsáætluninni með 5 atkvæðum 2 sátu hjá EE og ES.

  14. Tölvupóstur frá Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu dags. 25.01.12, varðandi Félagslegt leiguhúsnæði.
    Samþykkt að Gunnhildur Jóhannsdóttir verði fulltrúi sveitarfélagsins í starfshópi varðandi félagslegt húsnæði.

  15. Umhverfisstofnun: Ráðgjafanefnd um friðland að fjallabaki – tilnefning fulltrúa sveitarfélagsins.
    Samþykkt að Guðmundur Ólafsson og Guðlaug Ósk Svansdóttir verði fulltrúar sveitarfélagins í ráðgjafanefndinni.

  16. Þriggja ára fjárhagsáætlun 2013-2015, síðari umræða.
    Samþykkt með 5 atkvæðum EE og ES sitja hjá og vísa til bókunar D-lista við fyrri umræðu um áætlunina.


Fundargerð nefnda sveitarfélagins:

109. fundur Byggðaráðs Rangárþings eystra frá 26. janúar s.l. Staðfest.


Fundargerðir nefnda sveitarfélagsins og samstarfs sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu:
  1. 17. fundur félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu 25.01.12
  2. 48. fundur Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs. 05.01.12
  3. 49. fundur Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs. 16.01.12
  4. 50. fundur Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs. 25.01.12
  5. 47. fundur í skipulagsnefnd Rangárþings 26.01.12
    Liðir í fundargerðinni sem tilheyra Rangárþingi eystra:
    296-2012 Brú við Markarfljót, Rangárþingi eystra, ósk um heimild til skipulagsgerðar.
    297-2012 Eystra-Fíflholt, Rangárþingi eystra, deiliskipulag 2 íbúðarhúsa og landbúnaðarbyggingar.
    298-2012 Ystabælistorfa, Rangárþingi eystra, beiðni um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra.
    299-2012 Ormsvöllur á Hvolsvelli, breyting á gildandi deiliskipulagi athafnasvæðis.
    Framangreindir liðir staðfestir.
  6. 51. fundur byggingarnefndar Rangárþings 26.01.12
    Liðir í fundargerðinni sem tilheyra Rangárþingi eystra:
    678-2012 Skálakot, Rangárþingi eystra – byggingarleyfi fyrir hóteli.
    679-2012 Vallarbraut 16, Rangárþingi eystra – byggingarleyfi fyrir viðbygg. á íþróttahúsi.
    Framangreindir liðir staðfestir.
  7. Stjórnarfundur Hulu bs. frá 3. febrúar 2012. Staðfest.


Fundargerðir vegna samstarfs sveitarfélaga á Suðurlandi:
  1. Aukaaðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands 17.01.12


Erindi til kynningar:
  1. Landslag: Ýmsar upplýsingar varðandi verndarsvæði v. Skógafoss.
    Bókun frá síðasta sveitarstjórnarfundi þar sem afgreiðslu erindisins var frestað.
    Jóhann Frímannsson, kt.140952-3709 og Eyja Þóra Einarsdóttir, kt. 270155-3839, Moldnúpi, 861 Hvolsvelli, sækja um byggingarleyfi fyrir gistirými, sem byggt verður við farfuglaheimilið að Ytri Skógum, lnr. 163731, í Rangárþingi eystra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
    Afgreiðsla sveitarstjórnar:
    Erindinu hafnað. Vísað er í umsögn Umhverfisstofnunar þar sem byggingin kemur inn á verndarsvæði. Þá er einnig gerð athugasemd við að húsið er á tveimur hæðum. Kappkostað verði að ljúka deiliskipulagsvinnu sem stendur yfir á Skógum sem allra fyrst.
    Rúnar Guðmundsson byggingar- og skipulagsfulltrúi vék af fundi kl. 14:10
  2. Orkuveita Reykjavíkur: Minnispunktar frá fundi sveitarstjóra og oddvita frá 2.feb. s.l.
  3. Vegagerðin, umsókn um styrk úr styrkvegasjóði, bréf dags. 19.01.12
  4. RARIK, bréf dags. 20.01.12, viðhaldsgjald fyrir götulýsingu og breytt eignarhald.
  5. Velferðarráðuneytið, bréf dags. 30.12.11, styrkir til verkefna í þágu langveikra barna og barna með ADHD- greiningu.
  6. Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði- Háskóli Íslands, bréf dags. 19.01.12, gögn tengd eldgosinu í Eyjafjallajökli 2010, aðdraganda þess og afleiðingum.
  7. Bréf Þráins Víkings Ragnarssonar dags. 07.01.12, uppmokstur skurða milli Oddakots og Efri-Úlfsstaða.
  8. Háskóli Íslands, bréf dags. 25.01.12, Þakkarbréf fyrir gott samstarf við útgáfu skýrslu um aldarafmæli Háskóla Íslands.
  9. Atvinnuþróunarfélag Suðurlands: Samræða um stefnu. Aðalfundur 2011.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:53

Guðlaug Ósk Svansdóttir
Ísólfur Gylfi Pálmason
Haukur G. Kristjánsson
Lilja Einarsdóttir
Esther Sigurpálsdóttir                       
Elvar Eyvindsson
Guðmundur Ólafsson

Til baka