08.12.2011

154. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra

Mætt:   Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, Lilja Einarsdóttir, Haukur G. Kristjánsson, Kristín Þórðardóttir, Guðmundur Ólafsson, Elvar Eyvindsson, Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri  og Guðlaug Ósk Svansdóttir, oddviti sem setti fundinn og stjórnaði honum.

Oddviti bauð fundarmenn velkomna um leið og hann leitaði eftir athugasemdum við fundarboðið. Engar athugasemdir komu fram.

Fundargerð ritaði Ágúst Ingi Ólafsson.

Erindi til sveitarstjórnar:

  1. Endurskoðun á aðalskipulagi Rangárþings eystra, lýsing verkáætlun, áfangaskýrsla.
    Verkáætlun og áfangaskýrsla samþykkt samhljóða.

  2. Jazz undir fjöllum, erindi Sigurður Flosasonar, beiðni um styrk.
    Samþykkt að veita styrk kr. 250.000,-

  3. Skeiðvangur, umsókn um styrk á móti fasteignagjöldum.
    Beiðninni hafnað.

  4. Björn Bjarnason ósk um gögn v frístundahúsa í landi Staðarbakka.
    Samþykkt að afhenda Birni umbeðin gögn.

  5. Héraðsbókasafn Rangæinga, samningur um þjónustu við Hvolsskóla.
    Samningurinn samþykktur samhljóða.

  6. Erindi frá Elíasi Rúnari Kristjánssyni og Arnari Frey Ólafssyni varðandi Fossbúð.
    Ísólfur Gylfi lagði fram bréf frá Þorrablótsnefnd A-Eyfellinga.
    Erindinu hafnað.  Samþykkt að halda íbúafund um málefni Fossbúðar.

  7. Atvinnu- og rannsóknarsjóður Rangárþings eystra, tillaga D lista um að stofna sjóð.
    Tillagan felld með fjórum atkvæðum gegn þremur EE,KÞ og GÓ.

    Bókun meiri hluta sveitarstjórnar:

    Sveitarfélagið tekur þátt í Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands, en félagið veitir faglega aðstoð við ýmis verkefni auk þess sem félagið veitir styrki til verkefna á svæðinu.  Þá vinnur Nýsköpunarmiðstöð Íslands með atvinnulífinu við úthlutun á styrkjum til verkefna á landsvísu og heldur utan um þróunarstarf og nýsköpun.

  8. Fjárhagsáætlun Rangárþings eystra 2012, fyrri umræða.
    Fjárhagsáætlun vísað til síðari umræðu.

    Bókun minni hluta sveitarstjórnar:

    Við afgreiðslu svo stórra hagsmunamála fyrir sveitarfélagið og fjárhagsáætlun er, er brýnt að allir aðilar séu vel upplýstir og það með hæfilegum fyrirvara svo unnt sé að kynna sér alla þætti slíkra mála. Við gagnrýnum þann stutta frest sem okkur er gefinn til að fjalla um fjárhagsáætlun þessa, en hún barst okkur í hendur fyrir réttum tveimur sólarhringum og hefur fulltrúum minnihlutans ekki staðið til boða að taka þátt í undirbúningi málsins á fundum.

    Í öðru lagi lýsum við efasemdum okkar um réttmæti einstakra þátta áætlunarinnar, t.a.m. auknar lántökur sveitarfélagsins til nýframkvæmda, meðan þáttum í grunnþjónustu sveitarfélagsins er sniðinn afar þröngur stakkur og vandséð að áframhaldandi kröfur bitni ekki á þeirri þjónustu sem sveitarfélaginu ber lögum samkvæmt að veita. Að auki teljum við hönnun stjórnsýsluhúss ekki meðal forgangsatriða nú.

    Að síðustu og í samræmi við ofangreint, áskiljum við okkur rétt til að koma að frekari athugasemdum við áætlun þessa við síðari umræðu.

    Bókun meiri hluta sveitarstjórnar:

    Í þessari fjárhagsáætlun er ekki um þjónustuskerðingu að ræða, heldur fyllsta aðhalds gætt.  Auk lögboðinnar grunnþjónustu leggjum við fjármagn til fjölþættrar starfssemi m.a. í leik- og grunnskóla samanber samfellu í íþrótta- og tómstundastarfi til sérkennslu o.fl.  Við styrkjum fjölþætt félagsstarf í sveitarfélaginu. Auk þess teljum við að hlutverk sveitarfélagsins sé að stuðla að framkvæmdum á samdráttartímum.


  9. Staðfesting fundargerða frá sveitarstjórnarfundi frá 10. nóvember s.l. sbr. ákvörðun í fundargerð 153. sveitarstjórnafundar.

    134. fundur stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. 01.11.11 Staðfest.

    14. fundur félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu  27.10.11 Staðfest.

    45. fundur stjórnar Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu 31.10.11

    Afgreiðslu fundargerðarinnar frestað.


Fundargerðir vegna samstarfs sveitarfélaga á Suðurlandi:

  1. Fundargerð 6. Aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 28.10.11

  2. 136. Fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands 27.10.11

  3. Fundur í kjörnefnd SASS 24.10.11

      
Erindi til kynningar:

  1. Tölvupóstur Stefáns Thors, Skipulagsstofnun dags. 02.11.11, samkomulags Umhverfisstofnunar og Siglingastofnunar, ásamt verkaskiptingu á milli Siglingastofnunar og Rangárþings eystra.

  2. Skipulagsstofnun, bréf dags. 25.10.11, Landsskipulagsstefna 2012-2024.

  3. Umhverfisstofnun, bréf dags. 19.10.11, tilnefning fulltrúa í vatnasvæðanefnd.

  4. Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 20.10.11, frumvarp til breytinga á lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

  5. Brunabót, bréf dags. 20.10.11, samþykkt frá aðalfundi fulltrúaráðs EBÍ.

  6. Tölvubréf Önnu Runólfsdóttur, dags. 01.11.11, vegna óska um að loka veginum upp í Tindfjöll.

  7. Fundargerð samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags vélstjóra og málmtæknimanna dags. 01.11.11

  8. Fundargerð samráðsfundar ríkis og sveitarfélaga 5.10. 2011.

  9. Fundargerð samráðsfundar stjórnar sambandsins og formanna og framkvæmdastjóra landshlutasamtaka sveitarfélaga 14.10.11

  10. Fundargerð 790. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 28.10.11

  11. Fjallabakssvæðið, drög að verkáætlun um rammaskipulag 24.10.11

 Lagt fram á fundinum:

  1. Sjálfsmatsskýrsla Hvolsskóla 2010-2011.

  2. Skólanámsskrá Hvolsskóla 2011-2012.


Erindi til afgreiðslu – framhald

  1. Skipulagsstofnun, framkvæmdaleyfi vegna varnargarðs við Barkastaði bréf frá 25. nóv. s.l.

Fundargerðir nefnda sveitarfélagsins og samstarfs sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu:

  1. Byggðaráð Rangárþings eystra frá 24. nóv. s.l. Staðfest.

  2. 7. fundur fræðslunefndar Rangárþings eystra frá 10. nóv. s.l. Staðfest.
    Samþykkt að fela fulltrúum í fræðslunefnd, ásamt skólastjórnendum að vinna að gerð skólastefnu fyrir leik- og grunnskólann.

  3. 4. fundur starfsnefndar um málefni fatlaðra frá 24. nóv. lokafundur.                               Nefndinni þakkað fyrir vel unnin störf.

  4. Aðalfundur Skógasafns frá 21. nóv. s.l.

  5. 46. fundur skipulagsnefndar Rangárþings bs. Staðfest.

  6. 113. fundur barnaverndarnefndar Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu frá 23. nóv. Staðfest.

  7. 28. fundur Brunavarnir Rangárvallasýslu b.s. frá 21. nóv. s.l. Staðfest.

  8. 7. fundur Héraðsnefndar Rangæinga frá 11. okt. s.l. Staðfest.

  9. Fundur stjórnar byggingar- og skipulagsfulltrúaembættis Rangárþings bs. 06.12.11

  10. Aðalfundur byggingar- og skipulagsfulltrúaembættis Rangárþings bs. 06.12.11

  11. 7. fundur Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefndar dags. 06.12.11 Staðfest.

 

Fundargerðir vegna samstarfs sveitarfélaga á Suðurlandi:

  1. 209. fundur sorpstöðvar Suðurlands frá 22. nóv. s.l.

      

Erindi til kynningar:

  1. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands: Vatnsveita Rangárþings eystra, heildarúttekt.

  2. Fornleifavernd ríkisins, Kornvellir Rangárþings eystra, bréf frá 20. okt. s.l.

  3. Fornleifavernd ríkisins, Efri- og Syðri- Hóll Rangárþingi eystra, bréf frá 14. nóv. s.l.

  4. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga,  framlag v. nýbúa. Bréf frá 21. nóv. s.l.

  5. Ungmennafélag Íslands frá 47. Sambandsþing ályktanir.

  6. Iðnaðarráðuneyti v. Orkuveitu Reykjavíkur bréf frá 30. nóv. s.l.

  7. Fjárhagsáætlun  Hvolsskóla 2012 – helstu forsendur frá Skólastjóra.

 

Lagt fram á fundinum:

  1. Leikskólinn Örk ársskýrsla 2010-2011

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:10

Guðlaug Ósk Svansdóttir
Ísólfur Gylfi Pálmason
Haukur G. Kristjánsson
Lilja Einarsdóttir         
Kristín Þórðardóttir  
Elvar Eyvindsson
Guðmundur Ólafsson


Til baka