Hvolsskóli

Vallarbraut 16
860 Hvolsvöllur
Sími: 488 4240
Fax: 488 4259


Heimasíða Hvolsskóla:
http://www.hvolsskoli.is/

Skólastjóri:
       
Sigurlín Sveinbjarnardóttir         
 


Hvolsskóli er staðsettur á Hvolsvelli og er eini grunnskólinn í sveitarfélaginu.

 

Í skólanum eru um 250 nemendur.

 

Skólahérað Hvolsskóla er í austanverðri Rangárvallasýslu og nær frá Jökulsá á Sólheimasandi í austri að Eystri - Rangá í vestri.  Hvolsskóli er grunnskóli með nemendur á aldrinum 6 til 16 ára og starfar í 10 bekkjardeildum.  Skólanum er skipt í þrjú námsstig þ.e. yngsta stig 1. til 4. bekkur, miðstig 5. til 7. bekkur og elsta stig 8. til 10. bekkur.

Gildi Hvolsskóla eru:

  • Börn í Rangárþingi eystra eiga rétt á að fá bestu menntun sem möguleg er hér á landi.
  • Í Hvolsskóla ríkir gagnkvæm virðing í samskiptum fólks sem birtist m.a. í starfsháttum meðal nemenda og starfsmanna sem einkennist af samvinnu og lýðræðislegri ákvarðanatöku.


 

 

 

Framtíðarsýn Hvolsskóla:

Í Hvolsskóla er einstaklingurinn í brennidepli sem birtist í einstaklingsmiðuðu námi, samvinnu og sveigjanleika í kennsluháttum miðað við þarfir og getu hvers og eins, með það að markmiði að stuðla að hámarksárangri.

Nemendur skulu tileinka sér sjálfsaga, sjálfsvirðingu og raunhæft sjálfsmat. Gagnkvæm virðing einkenni öll samskipti sem skilar sér m.a. í aukinni ánægju nemenda og kennara.

Í skólanum er lögð áhersla á samvinnu við grenndarsamfélagið, að kalla eftir og virða skoðanir fólks í samfélaginu og færa inn í starf skólans jafnframt sem litið er á samfélagið allt sem námsvettvang fyrir nemendur.

Hvolsskóli er umhverfisvænn skóli.  Námið er skipulagt í nánum tengslum við umhverfið og náttúruna og með virðingu fyrir hvorutveggja að leiðarljósi.















Mat á skólastarfi í Hvolsskóla

 

Að beiðni skólanefndar Hvolsskóla gerði sveitarstjórn Rangárþings eystra samning við Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands haustið 2007 um að vinna leiðbeinandi ytra mat í Hvolsskóla. Tildrög þess voru umræður meðal aðila skólans um hvernig til hefði tekist að innleiða einstaklingsmiðað nám í skólanum. 

 

Tilgangur ytra mats í skólum er að fá mynd af skólastarfinu eins og það birtist á þeim tíma sem matið fer fram.  Matið fór fram á tímabilinu 4. september til 15. nóvember.  Matsaðilar skiluðu skýrslu um matið sem þeir kynntu á fundi 12. desember 2007 m.a. á opnum íbúafundi.  

 

Í skýrslunni er að finna margvíslegar upplýsingar og ábendingar um breytingaferlið að einstaklingsmiðuðu námi í Hvolsskóla og í upphafsorðum skýrslunnar segir m.a. “Hvolsskóli býr yfir miklum styrkleikum eins og til dæmis áhugasömum starfsmönnum og jákvæðum foreldrum. Umbótastarf hefur einkennt skólastarf á umliðnum árum og stefnir skólinn í átt að þeim gildum og framtíðarsýn sem hann hefur sett sér”.

 

Skýrslan er aðgengileg á heimasíðu Hvolsskóla www.hvolsskoli.is

 

Eftirfarandi samþykkt samhljóða í sveitarstjórn Rangárþings eystra 8.2. 2007.

 

Í nýútkominni skýrslu Rannsóknarstofnunnar Kennaraháskóa Íslands „Mat á skólastarfi í Hvolsskóla”kemur fram að skólastarf í Hvolsskóla er um margt framsækið og þróttmikið.  Hún gefur að mörgu leyti jákvæða mynd af starfinu, þó að ljóst sé að það er á viðkvæmu stigi vegna innleiðingar einstaklingsmiðaðs náms, nýs húsnæðis o.fl.  Mikill velvilji og jákvæðni starfsmanna og foreldra til skólans er fagnaðarefni og góður grunnur til að byggja á.

 

Skólastarf er eilíft umbótastarf og í framhaldi af þessari vinnu beinir skólanefnd eftirfarandi tillögu til sveitarstjórnar.

 

Gerður verði nýr samningur við Rannsóknarstofnun Kennaraháskólans, til tveggja til fjögurra ára,  um áframhald og eftirfylgni þessarar matsskýrslu.

 

Í þeirri vinnu skulu gerðar tillögur til úrbóta á grundvelli niðurstaðna skýrslunnar – áætlun um tímalengd og framkvæmd einstakra þátta.

 

Árangur umbótastarfsins verði metinn og sveitarstjórn og skólanefnd upplýst um gang mála.

 

Til að vinna að þessu verði skipuð þróunarstjórn þar sem eiga sæti; Skólastjóri, deildarstjóri, 3 fulltrúar kennara (einn frá hverju skólastigi, sem sitja þó ekki jafnframt í matsnefnd), einn fulltrúi annarra starfsmanna kosnir á starfamannafundi. Einn fulltrúi foreldra, tilnefndur af foreldraráði en sé þó ekki í foreldraráði né starfsmaður skólans. Einnig starfsmaður KHÍ þróunarstjórninni til ráðgjafar og aðstoðar.

 

Skólanefnd leggur áherslu á að þar sem skólastarf snýst um einstaklinga; nemendur, kennara, foreldra, verði að líta til allra vandamála sem fram koma í skýrslunni, jafnvel þótt einn eða fáir bendi á þau.  Grafist verði fyrir um orsakir og fundnar leiðir til úrbóta.