Midgard Base Camp kynnir: Nashville Nights á Íslandi!
Einstök tónlistarupplifun, þar sem fram koma 4 söngvarar og lagahöfundar frá Nashville ásamt sunnlensku söngkonunni og lagahöfundinum Önnu Hansen í svokölluðum „Writers Rounds“.
Sérstakur gestur: Fríða Hansen.
Nashville eða „Music city“, eins og borgin er kölluð, er einna þekktust fyrir að vera höfuðborg kántrítónlistarinnar. Meirihluti íbúanna þar eru lagahöfundar og söngvarar, sem margir hverjir semja smelli fyrir og með stórstjörnum, og semja lögin sem fara á flug um netheima og samfélagsmiðla.
Á hverjum degi flykkist fólk hvaðanæva að úr heiminum til Nashville til að upplifa ekta „Writers rounds“ á stöðum á borð við The Bluebird Cafe, 3rd & Lindsley, The Listening Room og The Local, og nú er röðin komin að Midgard Base Camp á Hvolsvelli.
„Writers rounds“ eru tónleikar, þar sem listamennirnir skiptast á að spila lögin sín, ásamt því að veita áhorfendum innsýn í það hvernig lögin urðu til og ferlið sem þarf til að þau nái eyrum fólks um allan heim. Þetta er fléttað inn í frábæran flutning atvinnusöngvara og lagahöfunda í einstakri tónlistarveislu, í ekta Nashville stíl.
Ekki láta þennan einstaka viðburð framhjá þér fara!