250. fundur 09. maí 2019 kl. 12:00 - 15:09 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Elín Fríða Sigurðardóttir aðalmaður
  • Guðmundur Jón Viðarsson aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir oddviti
  • Benedikt Benediktsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Christiane L. Bahner aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá

1.Beiðni um skólavist í sveitarfélagi utan lögheimilis

1904244

Sveitarstjórn samþykkir beiðnina samhljóða.

2.Forathugun v. þjónustusamnings við Útlendingastofnun

1904262

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að vera í samráði við félagsmálastjóra og Útlendingastofnum um möguleika minni sveitarfélaga til að sinna verkefninu.

3.Uppgræðslufélag Fljótshlíða; styrkumsókn til uppgræðslu

1905021

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið um 300.000 kr eins og undan farin ár.

4.Bergrisinn, þjónustusamingur um málefni fatlaðs fólks; 2019

1905006

Samþykkt samhljóða.

5.Vesturskák; ósk eiganda um sölu á landi

1905037

Málinu frestað þar sem enn er verið að afla ganga í málinu.

6.Veiðihús ehf; umsögn um rekstrarleyfi

1905019

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðlar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt samhljóða.

7.Skógar gesthús slf; umsögn um rekstarleyfi

1905017

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðlar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt samhljóða.

8.N1 ehf; umsögn um rekstrarleyfi

1905023

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðlar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt samhljóða.

9.Eldstó ehf; umsögn um rekstrarleyfi

1905018

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðlar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt samhljóða.

10.Stóra-Grund ehf; umsögn um rekstrarleyfi

1905022

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðlar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt samhljóða.

11.Byggðarráð - 180

1904003F

Sveitarstjórn samþykkir fundargerð Byggðarráðs í heild sinni.
  • Byggðarráð - 180 Rangárþing eystra gerir ekki efnislegar athugasemdir við textadrög varðandi helstu áherslur í stjórnunar- og verndaráætlun við stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands. Mikilvægt er að lögð sé áhersla á verndun ósnortinar náttúru og almenna nýtingu hálendis við skipulagsgerð. Nú þegar hafa sveitarfélög á Suðurlandi hafið vinnu við að kanna möguleika á að vinna svæðisskipulag fyrir Suður hálendið. Ljóst er að mikil vinna er framundan á því sviði, en sú vinna er unnin í réttri röð og af réttum aðilum þ.e. sveitarfélögunum. Út úr þeirri vinnu gæti mögulega komið sú niðurstaða að sveitarfélög á Suðurlandi séu tilbúin að leggja hluta af hálendinu í þjóðgarð, en það er þá út frá forsendum sveitarfélaganna. Rangárþing eystra gerir því talsverðar athugasemdir við þær fyrirætlanir að stofnaður verði þjóðgarður á miðhálendi Íslands. Nefnd sem skipuð var af umhverfis- og auðlindaráðherra á vordögum 2018 hefur verið að vinna að því hvernig eigi að stofna miðhálendisþjóðgarð yfirleitt. Svo virðist sem að gleymst hafi að velta því fyrir sér hvort það ætti að fara í þá vegferð. Talsvert mikið af spurningum er enn ósvarað varðandi þann mikilvæga þátt. Vissulega hefur ágætis samráð átt sér stað á milli nefndarinnar og sveitarfélaga, en þar hefur líka talsvert borið á því að sveitarfélög eru frekar neikvæð í umræðunni og með varann á. Það er vel skiljanlegt á margan hátt og eðlilegt að sveitarfélög fari í baklás þegar að þverpólitísk nefnd er byrjuð að vinna að skipulagsmálum sveitarfélaga t.d. með að ákvarða mörk nýs þjóðgarðs, aðkomuleiðir, áningastaði og uppbyggingu. Það er og á að vera hlutverk sveitarfélaganna. Að mati Rangárþings eystra er mikilvægt að spólað verði aðeins til baka og umræðan um hvort eigi að stofna þjóðgarð verði tekin við sveitarfélögin.

    Samþykkt samhljóða
  • Byggðarráð - 180 Byggðarráð Rangárþings eystra samþykkir samhljóða að styrkja landgræðslu á Almenningum um 300.000 kr.
  • Byggðarráð - 180 Fundargerð staðfest í heild.
  • Byggðarráð - 180 Fundargerð staðfest í heild.
  • Byggðarráð - 180 Liður 2; Þorvaldseyri

    Byggðarráð Rangárþings eystra samþykkir fyrir sitt leiti aukið fjármagn til Kötlu jarðvangs vegna opnunar gestastofu á Þorvaldseyri. Byggðarráðið beinir því til Kötlu jarðvangs að nýta það fjármagn sem nú þegar er fyrir hendi og hafa að leiðarljósi að gestastofan verði sjálfbær eining í framtíðinni.

    Fundargerðin samþykkt samhljóða að öðru leiti.




  • Byggðarráð - 180 Liður 3

    Liðnum vísað til Umhverfis- og náttúrverndarnefndar til umfjöllunar og nefndinni falið að útbúa tillögur til sveitarstjórnar.

    Fundargerðin samþykkt samhljóða að öðru leiti.
  • Byggðarráð - 180 Fundargerð staðfest í heild.
  • Byggðarráð - 180 Fundargerð staðfest í heild.
  • Byggðarráð - 180 Fundargerð staðfest í heild.
  • Byggðarráð - 180 Lagt fram til kynningar
  • Byggðarráð - 180 Lagt fram til kynningar

12.Skipulagsnefnd - 69

1904002F

Fundargerð samþykkt samhljóða í heild sinni.
  • Skipulagsnefnd - 69 Lagt fram til kynningar.
  • Skipulagsnefnd - 69 Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögurnar. Óverulegar breytingar voru gerðar á tillögunni í samræmi við umsagnir lögbundinna umsagnaraðila. Samráð var haft við hagsmunaaðila á svæðinu. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og send Skipulagsstofnun til staðfestingar í samræmi við 32. gr. skipulagslaga. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði send Skipulagsstofnun til staðfestingar í samræmi við 32. gr. skipulagslaga.
    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 69 Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar. Í umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um tillöguna kemur fram að skv. reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp sé meginreglan sú að koma á sameiginlegu fráveitukerfi í hverfum íbúðahúsa, en í tillögunni sé gert ráð fyrir rotþró og siturlögn við hvert íbúðarhús. Skipulagsnefnd mælist til þess að reynt verði að sameina tengingar við rotþrær og siturlagnir eins og kostur er. Í umsögn Umhverfisstofnunar um tillöguna er vitnað í kafla 2.1.1 í landsskipulagsstefnu þar sem fram kemur að við skipulagsgerð sveitarfélaga verði miðað að því að styrkja samfélag viðkomandi byggðarlags með því að beina vexti að þeim þéttbýliskjörnum sem fyrir eru og að uppbygging verði haldið áfram á þegar skilgreindum íbúðarsvæðum í sveitarfélaginu. Skipulagsnefnd tekur undir umsögn Umhverfisstofnunar um að uppbygging haldi áfram á þegar skilgreindum íbúðarsvæðum í sveitarfélaginu. Samt sem áður telur Skipulagsnefnd að hin nýja íbúðarbyggð muni styðja við þá umfangsmiklu atvinnustarfsemi sem rekin er á Hellishólum þannig að hægt sé að greiða fyrir því að starfsfólk geti búið á svæðinu. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og mælist til þess að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar. Sveitarstjórn samþykkir að tillagan verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 69 Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar. Í umsögn Umhverfisstofnunar um tillöguna kemur fram að svæðið sem tillagan nær til sé á náttúruminjaskrá (nr. 719), og sé svæði sem að er mólendi og votlendi með miklu fuglavarpi. Mikilvægt sé að þetta komi fram í greinargerð tillögunnar. Einnig bendir Umhverfisstofnun á að tillagan falli mögulega undir lið 12.05 í viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Skipulagsnefnd tekur undir umsögn Umhverfisstofnunar um að mikilvægt sé að það komi fram í tillögunni að svæðið, sem tillagan nær til, sé á náttúruminjaskrá. Skipulagsnenfd getur aftur á móti ekki fallist á að tillagan falli undir lið 12.05 í viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum þar sem að um minniháttar atvinnustarfsemi er að ræða og ekki sé hægt að líta á hana sem þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn. Að auki samræmist tillagan stefnu í aðalskipulagi Rangárþings eystra þar sem heimiluð er minniháttar atvinnustarfsemi samhliða hefðbundnum búskap. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og mælist til þess að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar. Sveitarsstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 69 Skipulagsfulltrúi kannaði kosti og galla þess að ráðast í heildarendurskoðuna aðalskipulags eða að hluta. Niðurstaðan er sú að hagstæðast og faglegast er að ráðast í heildarendurskoðun aðaðskipulags.
    Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki að ráðast í heildarendurskoðun aðalskipulags. Leitað var til þriggja aðila um vinnu við heildarendurskoðun aðalskipulagsins og leggur skipulagsnefnd til að samið verði við verkfræðistofuna Eflu um endurskoðunina í samvinnu við skipulagsnefnd og sveitarstjórn.
    Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir að ráðast í heildarendurskoðun á aðalskipulagi Rangárþings eystra. Sveitarstjórn samþykkir að samið verði við Verkfræðistofuna EFLU um endurskoðun aðalskipulagsins í samvinnu við skipulagsnefnd og sveitarstjórn.
    Samþykkt samhljóða.
  • 12.6 1904007 Efri-Rot; Landskipti
    Skipulagsnefnd - 69 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og nafnið á hinni nýju spildu. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir landskiptin og heitið á nýju spildunni.
    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 69 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og nöfnin á hinum nýju spildum. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir landskiptin og heitið á nýju spildunum.
    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 69 Að mati skipulagsnefndar er um óverulega breytingu á deiliskipulagi að ræða. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagsbreytinguna og leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur til að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en framkvæmdaaðila. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar. Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytinguna og að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn samþykkir að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en framkvæmdaaðila.
    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 69 Skipulagsnefnd hafnar veitingu stöðuleyfis. Stöðuleyfisumsókn samræmist ekki skilmálum deiliskipulags. Bókun fundar Sveitarstjórn hafnar veitingu stöðuleyfis þar sem að stöðuleyfisumsókn samræmist ekki skilmálum gildandi deiliskipulags á svæðinu.
  • Skipulagsnefnd - 69 Skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi frá 1. maí 2019 til 1. september 2019. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir að veita stöðuleyfi frá 1. maí 2019 til 1. september 2019.
  • Skipulagsnefnd - 69 Skipulagsnefnd hafnar veitingu stöðuleyfis. Stöðuleyfisumsókn samræmist ekki skilmálum deiliskipulags. Bókun fundar Sveitarstjórn hafnar veitingu stöðuleyfis þar sem að stöðuleyfisumsókn samræmist ekki skilmálum gildandi deiliskipulags á svæðinu.
  • Skipulagsnefnd - 69 Skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi frá 15. maí 2019 til 14. maí 2020 og hvetur til snyrtilegrar umgengni og frágangs um svæðið. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar. Sveitarstjórn samþykkir að veita stöðuleyfi frá 15. maí 2019 til 14. maí 2020.

13.Fagráð Sögusetursins - 9

1905002F

Afgreiðslu frestað.
  • 13.1 1904001 Staða Sögusetursins
    Fagráð Sögusetursins - 9 Fagráðið leggur til við sveitarstjórn að núverandi samningi um rekstur Söguseturs verði sagt upp.
  • 13.2 1903145 Framtíðarstaðsetning Njálurefilsins
    Fagráð Sögusetursins - 9 Fagráðið ræddi ýmsa möguleika varðandi uppbyggingu Söguseturs og sýningu á Njálureflinum til framtíðar. Fagráðið leggur fram greinargerð varðandi næstu skref fyrir nýtt sýningarhús. Fagráðið beinir því til sveitarstjórnar að strax verði farið í undirbúning og hönnun þar sem að að stutt er í að refillinn verði tilbúinn til sýningar.
  • 13.3 1808052 Njálurefillinn: Ferð til Bayeux í Frakklandi 25. - 29.4.2019
    Fagráð Sögusetursins - 9 Fagráðið fagnar heimsókninni og greinargóðri kynningu í kjölfar hennar. Fagráðið telur að heimsóknin hafi skilað góðum árangri og mikilvægt fyrir framtíð Njálurefilsins að vera í góðum samskiptum við sýningarhaldara í Bayeux. Lagðir fram minnispunktar frá fundi hópsins með Antoine Verney safnstjóra Bayeux Museums.
  • 13.4 1905020 9. fundur Fagráðs Sögusetursins; Önnur mál
    Fagráð Sögusetursins - 9 Enginn önnur mál rædd.

14.Bergrisinn, stjórnarfundur; 9. apríl 2019

1905005

Fundargerð staðfest.

15.Ábúendatal V-Landeyja; Kynning á sveitarstjórnarfundi

1905040

Þorgils fór yfir stöðu vinnu sinnar við ábúendatal í Vestur Landeyjum. Sveitarstjórn samþykkir að halda vinnunni áfram á sömu forsendum og verið hefur.

16.Midgard; Kynning á sveitarstjórnarfundi

1904245

Björg og Arnar Gauti fyrir hönd Midgard, óskuðu eftir að koma á fund sveitarstjórnar og kynna starfsemi sinna fyrirtæki.
Sveitarstjórn þakkar fyrir greinargóða kynningu.

17.Kostnaður Rangárþings eystra við sorphreinsun og eyðingu

1905024

Margrét Jóna, skrifstofu- og fjármálstjóri, fer yfir þróun kostnaðar vegna sorphiðu og urðunar.
Sveitarstjórn þakkar skrifstofu- og fjármálastjóra fyrir greinagóða yfirferð.
Ljóst er að veruleg kostnaðaraukning hefur orðið á undanförnum árum fyrst og fremst vegna aukins óflokkaðs úrgangs til urðunar. Sveitarstjórn leggur áherslu á mikilvægi flokkunar svo ekki þurfi að bregðast við með hækkun sorpgjalda hjá íbúum sveitarfélagsins.
Sorpstöð Rangárvallasýslu mun standa fyrir öflugri kynningu á flokkun úrgangs á svæðinu, nú á vordögum, samhliða breytingu á sorphirðu og flokkun lífræns úrgangs.
Samþykkt samhljóða.

18.Fjármál sveitarfélaga; Erindi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis

1904269

Lagt fram.

19.Safnmappa; þingsályktanir og frumvörp til umsagnar 2019

1902326

Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 15:09.